Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
4.5.2015 | 12:58
Grein í Fiskifréttum 30. apríl 2015
Kraftmikill sjávarútvegur
Sýningin í Brussel
Það var gaman að heimsækja Brusselsýninguna í síðustu viku og upplifa bjartsýni í íslenskum sjávarútvegi eftir áratuga stöðnun. Allt á fullri ferð og spennandi hlutir að gerast. Ef litið er til veiða og vinnslu, standa Íslendingar öðrum framar og helst að miða við laxeldi til að sjá eitthvað sem kemst með tærnar að hælum greinarinnar. Það var tími kominn til en sjávarútvegur mátti búa við alltof hátt gengi fram eftir síðasta áratug, sem hélt uppi innistæðulausum lífskjörum og launum landsmanna sem áttu sér engar forsendur. Síðan kom hrunið og í framhaldi af því ríkisstjórn sem var mjög andsnúin atvinnulífinu og sérstaklega sjávarútvegi. Öll framtíðarsýn hvarf og óvissa ríkti um hvort greinin yrði í raun þjóðnýtt þar sem stjórnvöld ætluðu sér að halda í alla spotta og draga sjávarútveg út úr markaðshagkerfinu.
Framtíðarsýn í sjávarútvegi
Þrátt fyrir að pólitísk óvissa sé enn fyrir hendi, hafa stjórnendur í greininni greinilega fengið trú á framtíðina og fjárfesta af miklu afli í skipum og búnaði. Vonandi styttist í að greinin fjárfesti að sama skapi í mannauði sem er ekki síður mikilvægur þáttur í góðri afkomu til framtíðar. Skaginn og 3X Technology kynntu ofurkælingu um borð í veiðiskipum sem valda mun straumhvörfum meðhöndlun á ferskum fiski fyrir verðmæta ferskfiskmarkaði okkar. Með ofurkælingu verða skipin umhverfisvænni þar sem hugtakið ísfisktogari mun heyra sögunni til og talað verður um ferskfisktogara í staðinn, þar sem enginn ís verður notaður um borð. Fiskurinn verður ofurkældur strax sem gerir ís óþarfan og tryggir gæði og líftíma vöru sem aldrei hefur sést fyrr. Mikill orkusparnaður fylgir ofurkælingu þar sem meðaltogari notar um 50 tonn af ís í hverri veiðiferð, sem bæði kostar orku að framleiða, og sigla með ásamt vinnu fyrir sjómenn að nota ísinn. Í flutningum á ferskfiskmarkaði verður óþarfi að nota ís sem sparar umtalsverða fjármuni og dregur verulega úr sótsporum í íslenskum sjávarútvegi.
Marel og Valka
Annað sem vakti mjög mikla athygli á Brusselsýningunni voru vatnsskurðarvélar frá Marel og Völku. Hér er ekki um neitt minna að ræða en byltingu í vinnslu á bolfiski á Íslandi. Það er ekki bara að vélin spari átta til tíu störf og auki þannig framleiðni; heldur er það möguleikinn sem felst í jöfnum úrskurði beina og nýtingar á flaki sem bætir hana um 2%. Þegar beinagarðurinn er farinn er flakið skorið niður af mikill nákvæmni í staðlaða bita sem henta nákvæmlega kröfuhröðustu kaupendum. Þegar búið er að skera burt verðmætasta bitann, hnakkastykkið, og taka burtu þunnildi verður eftir eftir afurð sem kölluð er bakflak; sem í raun er lítið flak sem hentar markaðinum afskaplega vel og fæst mun betra verð fyrir en sporð og miðstykki.
Þróun sjávarútvegs
Ljóst er að tími stærri vinnslustöðva er runninn upp. Erfitt verður fyrir litlar vinnslur að keppa við þær stærri og öflugri sem hafa burði til að fjárfesta í dýrum búnaði til að auka framleiðni. Þetta mun kalla á samþjöppun í greininni, sem vonandi verður ekki stöðvuð af misvitrum stjórnmálamönnum, því slík framleiðni er forsenda betri launa á Íslandi og lífskjara landsmanna. Það er kominn tími til að taka þann beiska kaleik af sjávarútveginum að draga vagn byggðastefnu á Íslandi. Að sjálfsögðu eru til aðrar leiðir til að aðstoða byggðir í vandræðum ,en að útdeila kvóta til að tapa á honum. Þar verður engin verðmætasköpun og er tap fyrir alla landsmenn.
Pólitíkin
Nú eru umræður um að breyta veiðileyfagjaldi á þann veg að það verði lagt á fyrirtæki eftir árangri þeirra í rekstri. Sem þýðir í raun og veru að verðlauna eigi skussann og refsa þeim sem betur stendur sig. Þetta er alröng hugsun og eina vitið að hafa gjaldið fast á hvert kíló af fiski. Allir greiða það sama og allir sitja við sama borð í samkeppni um nýtingarréttinn. Tökum alla rómantík út fyrir sviga og horfum á sjávarútveg sem öfluga atvinnugrein sem getur verið hornsteinn góðra lífskjara á Íslandi.
Gunnar Þórðarson viðskiptafræðingur
13.3.2015 | 08:33
Munaðarlaus í stjórnmálum
Slit á viðræðum við ESB
Það fylgir því tómleikatilfinning að finna sig ekki lengur heima í Sjálfstæðisflokkum, eftir 45 ára þátttöku, og eins og að verða munaðarlaus. Nú hafa öfgahóparnir algerlega náð völdum og rekið smiðhöggið í að losna við frjálslynda frjálshyggjumenn eins og mig úr flokkunum.
Bjarni sagði í sjónvarpi í gær að engu skipti hvort umsóknin væri dauð eða steindauð. Ef svo er þá hefði hann átt að láta málið liggja kyrrt. Stóri munurinn þarna á milli liggja í því að með því að loka endanlega á umsóknarferlið verður það ekki hafið aftur nema með þinglegri ákvörðun allra ESB ríkjanna. Það er meiriháttar mál og má segja að með þessu hafi þjóðernissinnar lokað á inngöngu í náinni framtíð, jafnvel þó þjóðin vildi það!
Miðað við þau stóru átakamál sem ríkisstjórnin stendur frammi fyrir er þetta svona eins og maður sem sundríður straumharða jökulá; tvísýnt er hvor hinum bakkanum er náð og allt lagt undir vegferðina. Þegar komið er yfir út í harðasta strauminn byrjar hann að berja á hestinum og skamma hann fyrir gamlar syndir, þó svo að það geti orðið báðum að fjörtjóni.
Miðað við ástandið í efnahagsmálum Íslendinga í dag er óskiljanlegt að hefja þau átök sem fylgir endanlegri lokun á viðræður við ESB. Margt orkar tvímælis um inngöngu eins og málum er háttað í Evrópu í dag, en ekkert réttlætir þó að útiloka enn valkostinn til að bæta lífskjör á Íslandi. Við erum að fást við risavaxin mál þessa dagana og óskiljanlegt að hefja þessi átök við þjóðina, og marga sjálfstæðismenn.
Markaðsbúskap eða pólitíska fyrirgreiðslu
Sem sjálfstæðismaður trúi ég á markaðshagkerfi og frelsi einstaklingisins. Ég er algerlega á móti pólitískum aðgerðum þar sem gengið er á hag margra til að tryggja hag fárra. Reyndar trúði ég því að þetta væri inngreypt í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Við þurfum að losa um gjaldeyrishöftin, sem er hættuleg aðgerð og nauðsynlegt að hafa sem flesta með í stökkinu þegar það er tekið. Ríkisvaldið er með yfir 60% af íslenskum lánamakaði og það ásamt krónunni kostar um 2-3% hærri vaxtamun en gengur og gerist í nágrannalöndunum. Íslenska króna kostar okkur yfir 100 milljarða á ári, miðað við skýrslu Seðlabankans um peningamál, og engin sýn að það muni breytast. Íslendingur sem tekur íbúðarlán til langs tíma greiðir því íbúðina sína tvisvar miða við sænskan nágranna sinn. Bakbeinið í ESB er markaðshagkerfi og samkeppni, hvortveggja sem mikill skortur er á á Íslandi. Hér er umræðan þannig að verðlag byggi á góðvild kaupmannsins en ekki samkeppni. Ríkið er á fullu á samkeppnismarkaði og mest munar þar um Íbúðalánasjóð sem einn og sér heldur uppi hluta af háum vaxtamun ásamt stórkostlegum meðgjöfum úr ríkissjóð.
Bjarni var ekki trúverðugur í gær og reyndi ítrekað að sveigja hjá að hann er eð ganga bak orða sinna við mig sem kjósanda flokksins. Hann reiknar með að 80% af þjóðinni séu kjánar og fullyrti að ekkert hefði komið útúr samningaferlinu við ESB. Sannleikurinn er að búið var að loka flestum köflum nema landbúnaði og sjávarútveg. Hvað landbúnaðinn varðar er ekki hægt að gera verr en staðan er í dag og allir samningar við ESB mun bæta lífskjör á Íslandi. Hvað sjávarútvegsmálin varðar þá hef ég sett mig vel inn í þau mál og vel mögulegt að semja um málaflokkinn. Hefði það ekki tekist hefði samningur aldrei verið samþykktur hvort sem er.
Það hefur verið ömurlegt að fylgjast með umræðum andstæðinga þessara viðræðna og lítið verið um rök og málefnalega umræðu. Hæst stendur í þessari umærðu Staksteinar, sem eru skrifaðir eins og höfundur gangi ekki heill til skógar, slíkir öfgar og öfugmæli hafa leitað á þær síður. Helst mætti skilja að Evrópuþjóðir væru okkar helstu óvinir og betra að halla sér að Rússlandi og Kína.
Pólitískur ómöguleiki
En hvert leita pólitískir utangarðsmenn eins og ég? Á ég þá hvergi heima? Er það svo að frelsi, markaðshagkerfi og samkeppni eigi ekki hljómgrunn í íslenskri pólitík. Nokkuð sem er undirstaða velmegunar í vestrænum ríkjum. Framsóknarflokkurinn er ómögulegur samstarfsflokkur en það er Samfylkingin líka. Flokkur sem gengur gegn grundavallar atriðum til að halda uppi öflugri verðmætasköpun á Íslandi á ekki að hafa völd. En vill Sjálfstæðisflokkurinn ganga þá leið? Flokkurinn er ekki að hugsa um þjóðahag þessa dagana og allt annað sem býr undir þessari gerræðislegu ákvörðun. Flest allt ungt fólk á hægri væng stjórnmálanna sem ég hef rætt við er því sammála.
12.2.2015 | 09:25
Mikilvægi eignarréttar
Stjórn fiskveiða
Í grein sem Guðjón Arnar Kristjánsson ritar í Fiskifréttir undir heitinu Er leitað að sátt? ræðir höfundur um innleiðingu kvótakerfisins og telur það hafa verið sett á vegna hruns í þorskstofninum. Þetta er mikill misskilningur en kvótakerfið var sett á 1984 til að ná efnahagslegum markmiðum, þar sem veiðiflotinn var orðin miklu öflugri en afkastageta veiðistofna gaf tilefni til. Það þurfti ekki kvótakerfi til að takmarka veiðar og byggja upp fiskistofna! En aðrar hugmyndir að stjórnun veiða s.s. sóknarmarksleiðin kölluðu á mikla sóun og var metin nánast ómöguleg til að byggja upp atvinnugrein sem skila myndi arðsemi til framtíðar. Guðjón var mikill talsmaður sóknarkerfis og ásamt mörgum bentu á þá leið sem Færeyingar ákváðu að fara við stjórnun fiskveiða. Staðan hjá frændum okkar í dag er sú að botnfiskveiðar þeirra hafa hrunið og greinin er rekin með miklu tapi, þar sem kostar fleiri krónur að sækja fiskinn en hann skilar í verðmætum. Færeyingar hafa farið ranga leið með sína fiskveiðistefnu og lítið ber á þeim núna sem um áratuga skeið börðust fyrir innleiðingu sama kerfis hér á Íslandi. Það er rétt að benda á aðra staðreyndavillu í máflutningi greinarhöfundar um að LÍÚ hafi barist fyrir kvótasetningu, en hún var mjög umdeild í þeirra röðum.
Neikvæð umræða
Umræðan um þetta mikla hagsmunamál þjóðarinnar hefur verið á neikvæðum nótum þar sem reynt hefur verið að gera íslenska útgerðamenn tortryggilega og nánast að óvinum þjóðarinnar. Þessi aðferð er svo sem vel þekkt í sögunni, en fer alveg á mis við faglega og skynsamlega umræðu. Upphrópanir og frasar eins og; kvótagreifarog sægreifar er notað í röklausri umræðu og hagsmunasamtök þeirra kölluð grátkór, sem er mjög gildishlaðið orð. Þessi umræða er engum til sóma og sérstaklega ekki fólki sem á stöðu sinnar vegna að taka ábyrga afstöðu í einu mesta hagsmunamáli þjóðarinnar, t.d. þingmenn. Þrátt fyrir einstakan árangur íslensks sjávarútvegs hafa forsvarsmenn atvinnugreinarinnar þurft að sitja undir slíkri umræðu. Þegar Guðjón talar um velgegni norsks sjávarútvegs gleymist að nefna að íslenskur sjávarútvegur skilar mun hærra framlegðarhlutfalli en norskur, einmitt vegna þess að við búum við skynsamara og betra stjórnkerfi fiskveiða en þeir.
Eignarréttur og spilling
Það sem áðurnefndur greinarhöfundur virðist ekki skilja, er að einmitt vegna eignarréttar á nýtingu afla við Íslandsmið hefur þjóðin náð þessum árangri í sjávarútvegi, þar sem bein tenging veiða, vinnslu og markaðar hámarkar verðmætasköpun. Í bókinni The Rational Optimisteftir Matt Ridley, er rætt um mikilvægi eignarétta á afkomu þjóða. Þar kemur fram að ein ástæðan fyrir fátækt í Afríku er skortur á eignarétti og einmitt í þeim löndum innan álfunar sem búa við tryggan eignarétt ganga hlutirnir betur. Þrátt fyrir að Botswana hafi gengið í gegnum allskyns hremmingar, jafnvel á Afrískan mælikvarða, hefur ríkið búið við mesta hagvöxt í heimi þrjátíu ár eftir sjálfstæði, um 8% á ári. Einmitt vegna menningar sem byggir á eignarétti og tryggir hann. Öðru máli gegnir í Egyptalandi þar sem eignaréttur ekki virtur og tekur um 14 ár að fá lóð undir íbúðarhús. Nánast enginn bíður eftir því og íbúar landsins byggja því ólöglega. Fyrst hæð handa sjálfum sér og síðan nokkrar hæðir ofaná fyrir ættingja og vini, til að fjármagna bygginguna. Ekki er hægt að veðsetja ólöglega eign og því ekki hægt að fá lán. Til þess að þetta gangi nú upp þarf að múta embættismönnum til að fá frið, en spilling fylgir fast á eftir skorti á eignarétti. Kostnaður samfélagsins er óhóflegur vegna þessa þar sem komið er í veg fyrir eðlilega nýtingu fjármagns.
Pólitísk úthlutun gæða
Þetta væri einmitt raunveruleikinn ef Halldór Ásgrímsson hefði ekki með harðfylgi komið kvótanum á í íslenskum sjávarútveg og ríkið hefði fengið yfirráðarétt yfir nýtingu sjávarafla. Með því tryggði hann eignarétt á nýtingarétti afla og snéri þannig viðvarandi tapi útgerðar í arðsemi sem er einstök á heimsvísu. Flestar þjóðir stefna nú í þessa átt með sinn sjávarútveg.
Byggðakvótinn er einmitt gott dæmi um um skort á eignarétti þar sem pólitískir aðilar útdeila gæðum til þeirra sem eru þeim þóknanlegir. Ekki er horft til arðsemi við þá úthlutun og mörg dæmi um misbeitingu á þessu valdi, enda er hver höndin upp á móti annarri við úthlutun byggðakvóta. Á hverju ári hafa menn tekist á um þessa úthlutun í mínum heimabæ og er árið 2015 þar engin undantekning og lítil sátt um ráðslagið.
4.12.2014 | 14:44
Eigið fé í sjávarútvegi - Grein í Fiskifréttum 5. des 2014
Endurgjald til eiganda fyrirtækja
Á sjávarútvegsráðstefnunni á dögunum tókust Daði Már Kristófersson og Steingrímur J. Sigfússon á um arðgreiðslur sjávarútvegfyrirtækja í tengslum við veiðigjöld. Sá síðarnefndi átti ekki orð yfir því að sum fyrirtæki greiddu hluthöfum hærri arð en veiðigjöld til ríkisins og taldi að þjóðin væri með því hlunnfarin. En er það svo og er eitthvað óeðlilegt við að greiða arð til hluthafa?
Í markaðshagkerfi þykir það eðlilegasta mál að hluthafar greiði sér arð af eign sinni. Ef það væri ekki myndu fáir fjárfesta í fyrirækjum og því erfitt um vik að fjármagna rekstur sem venjulega er fjármagnaður með hlutafé eða lánsfé, þar sem það fyrrnefnda er venjulega dýrara en það síðarnefnda. Eðlilega þar sem hluthafinn tekur meiri áhættu með því að leggja eigið hlutafé undir um að reksturinn gangi, en lánveitandi tryggir sig með veðum eða ábyrgðum. Þetta er reyndar grunnurinn að hlutafélagaforminu þar sem atvinnurekandi leggur hlutaféð undir en ber venjulega ekki ábyrgð umfram það. Enska heitið dregur einmitt dám af því eða takmörkuð ábyrgð (limited liability company) en þetta félagaform er eitt af grunnstoðum vestrænnar velmegunar.
Sjávarútvegur og markaðshagkerfi
Þar sem hlutaféð er dýrari kosturinn þarf að finna jafnvægi í því hversu mikið eigið fé fyrirtækja er, of lítið eigið fé gerir lánveitanda órólegan sem krefst þá hærri vaxta og of mikið eigið fé krefst meiri hagnaðar til að skila fjárfestum eðlilegu afgjaldi af eign sinni. Ekki er langt síðan N1 greiddi út háa arðgreiðslu til eiganda sinna, til að stilla þetta af, enda lánin ódýrari en hlutaféð. Í umræðu um arðgreiðslur í sjávarútveg þarf að líta til þess hvort greinin sem heild er að greiða óeðlilegar arðgreiðslur, en ekki tala um einstök félög í því samhengi.
En er sjávarútvegur eitthvað frábrugðinn öðrum rekstri? Á ekki að reka hann á markaðslegum forsendum? Er það þannig að veiðigjald eigi að vera það hátt að best reknu sjávarútvegsfyrirtækin geti ekki greitt hluthöfum endurgjald af eign sinni? Er líklegt að einhver vilji fjárfesta í slíkum rekstri? Miðað við umræðuna mætti skilja vilja vinstri manna til að stilla veiðigjöldin þannig að best reknu fyrirtækin skili litlum sem engum arði til eiganda sinna en verst reknu fyrirtækjunum verði tryggður rekstur. Hvernig er það hægt og hver er þá hvatinn fyrir fjárfesta að leggja fé sitt í sjávarútveg?
Markaðsbúskapur í sjávarútvegi
Stjórnmálamenn verða að svara þeirri spurningu hvort þeir vilja reka sjávarútveg á markaðslegum forsendum eða félagslegum. Það er reyndar með ólíkindum ef kratar á Íslandi tala fyrir slíkum sósíalisma og skera sig þá algerlega frá skoðanabræðrum sínum á hinum norðurlöndunum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þessum efnum og nauðsynlegt að velja hvaða leið skuli farin, á ábyrgan hátt. Sú ákvörðun verður að byggja á því að hámarka heildarhag þjóðarinnar en ekki að snúast um hugmyndafræði eða lýðskrum.
Það eru til aðrar leiðir en sósíalismi til að dreifa fiskveiðiarði, ef það er rétt að kvótakerfið virki svo vel að um mikinn umframarð sé að ræða í greininni. Núverandi launakerfi sjómanna er einmitt gott dæmi um það,enda fer góð afkoma sjávarútvegsfyrirtækja og þeirra mjög vel saman. Það er gott að sjómenn hafi góð laun, enda besta leiðin til að dreifa umframhagnaði. Annað gott ráð væri að skikka stærri sjávarútvegsfyrirtæki til að fara á markað. Þannig geta allir sem hafa borð fyrir báru keypt hlut í þeim á réttu verði. Það yrði kærkomið tækifæri fyrir lífeyrisjóði að ávaxta lífeyri okkar almennings með góðri afkomu sjávarútvegs og eðlilegum arðgreiðslum til hluthafa. Þessi fyriræki voru flest á markaði en einhverra hluta vegna drógu þau sig út. Annar kostur er við þessa leið er að fyrirtæki í kauphöll þurfa að birta opinberlega reikninga sína ársfjórðungslega sem eykur verulega gegnsæi í rekstri þeirra.
29.10.2014 | 13:51
Grein í Fiskifréttum okt. 2014
Glöggt er gestsaugað
Tilfinningar eða skynsemi
Oft tölum við um að glöggt sé gestsaugað, enda lyftir hann sér yfir bæjarþrasið og horfir meira hlutlægt á málin og lætur tilfinningar minna ráða afstöðu sinni. Þó oftar en ekki séu álit erlendra sérfræðinga umdeild á Íslandi, þá er rétt að taka mark á slíku og nota sem innlegg í umræðuna og ákvarðanatöku um hvernig við viljum haga málum með almannahag í huga.
Skýrsla OECD
Á bls. 77 í skýrslu OECD um umhverfismál sem kom út síðsumar, er fjallað um sjávarútveg á Íslandi. Það er athyglisvert hvaða augum sérfræðingar í París líta á Íslenskan sjávarútveg og þá sjávarútvegsstefnum sem hér er fylgt. Eftirfarandi er lausleg þýðing höfundar á hluta umfjöllunar og er birt á hans ábyrgð:
Sjávarútvegur er mikilvægur fyrir efnahag Íslands og skapar um 25% af verðmæti heildar útflutningi þjóðarinnar. Íslendingar hafa stýrt veiðum sínum á sjálfbæran hátt með hámörkun verðmætasköpunar sem markmið. Grunnurinn að árangri Íslendinga við stjórnun fiskveiða byggir á setningu heildarkvóta á leyfðan afla (TAC), og aflamarkskerfi með framseljanlegum kvóta (ITQ) , og er kjarninn í árangursríkri fiskveiðistjórnun Íslendinga. Heildarkvóti er byggður á vísindalegum grunni til að tryggja líffræðilega sjálfbærni veiða og hagkvæma veiðistofna. Framseljanlega kvótakerfið tryggir veiðirétt sem er ígildi eignaréttar, sem ýtir undir hámörkun á verðmæti landaðs afla. Veiðimaður sem fær úthlutað tilteknu magni af afla reynir þannig að hámarka þau verðmæti sem hægt er að fá fyrir hann. Þetta er ólíkt því sem víðast þekkist þar sem notast er við ólympískar veiðar þar sem skammtíma hagur ræður för og allri reyna að ná sem mestum afla á sem skemmstum tíma.
Í upphafi var kvóta úthlutað án endurgjalds en verðmæti hans hefur aukist í samræmi við þá auknu verðmætasköpun sem kerfið hefur skapað. Skynsamleg nýting fiskistofna hafa enn ýtt undir þessi verðmæti þar sem ódýrara er að nýta sterka veiðistofna sem gefur mun meira í aðra hönd, þ.e.a.s. eykur verðmætasköpun. Þrátt fyrir að margir vilji vinda ofanaf þessu vandamáli" þá virðist fátt um lausnir" fyrir stjórnvöld sem ekki myndu draga úr þeirri verðmætasköpun sem kerfið hefur skapað.
Veiðileyfagjald er þó ein leið til að sækja umframhagnað til greinarinnar, en það var sett á 2001, en því var umbylt 2012. Upphafleg hugmynd af veiðigjaldi var að ríkið endurheimti þann kostnað sem rekstur fiskveiðistjórnunarkerfis kallar á. Veiðileyfagjald er leiguskattur til að ná í þann umframhagnað sem myndast í sjávarútveg, munurinn á milli söluvirði og framleiðslukostnaði, að meðtöldum sanngjörnu afgjaldi af fjárfestingu. Þegar búið er að skilgreina veiðigjald á þorsígildistonn, er það sett á 65% af því gjaldi samkvæmt skilgreiningu lagana. Gert var ráð fyrir að gjaldið skilaði 9 milljörðum króna 2013, eða 0,5% af GDP.
Kerfið er í endurskoðun þar sem álagning gjaldsins ögrar afkomu greinarinnar og þessi aukna skattbyrði veldur áhyggjum, ekki síst hvernig hún leggst mismunandi á hinar ýmsu greinar sjávarútvegs. Það hefur sýnt sig að erfitt er að reikna út sanngjarnt veiðigjald en sérstök nefnd átti að ákveða þá upphæð.
Árið 2014 var gjaldið lækkað á botnfiskveiðar en bætt í á uppsjávarveiðum og vinnslu, sem hafa skilað betri afkomu. Hafa ber í huga að vel útfært veiðigjald getur verið góð skattlagningaleið og haft ýmsa efnahagslega yfirburði yfir aðra skattlagningu. Hinsvegar verður að varast að skattur eins og veiðigjald sé ekki svo hár, að hann valdi skaða á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Jafnframt að verulegur hluti ávinnings af kvótakerfinu hefur þegar verið tekin út úr kerfinu með kvótasölu síðan 1984.
Umræða um sjávarútveg á Íslandi
Þetta er athyglisverð lesning og það er augljóst að umsóknaraðilar telja íslenska kvótakerfið vera hagkvæmt og hámarki verðmætasköpun í sjávarútveg. Ásamt skynsamlegri nýtingu sem byggir á ráðleggingum vísindamanna Hafró. Umræða margra stjórnmálamanna í gegnum tíðina um sjávarútveg á Íslandi hefur byggst á fjandskap og gengur gegn hagsmunum þjóðarinnar. Hvað gengur því ágæta fólki til?
Gunnar Þórðarson MSc í alþjóðaviðskiptum
17.9.2014 | 09:19
Sósíalisminn í Frakklandi
Reglulega kenna andstæðingar ESB sambandinu um atvinnuleysi og öðrum vesaldómi í Frakklandi. Þetta er auðvitað ekki rétt og óþarft að fara yfir lækinn til að finna sökudólg í Brussel. Málið er að franskt efnahagslíf er helsjúkt eins og vel kemur fram hjá efnahagsráðherranum. Vinnumálalöggjöfin er svo brengluð að fyrirtæki þora ekki að ráða, þó vel gangi, þar sem nánast ómögulegt er að reka starfsmenn eða fækka þeim aftur.
Það er einhvernveginn þannig að vinstri menn hafna hvötum í kerfinu og halda sig við ákvðein barnaskap. Rétt eins og umræðan er hér á landi um vsk og matarskattinn. Í raun ætti að taka skrefið til fulls og hafa eitt vsk stig. Málið er ekki flækjustig við að rukka skattinn heldur hvernig svona gloppur í skattlagningu brengla markaðinn.
Litlar líkur eru á að dusilmennið hann Hollande breyti efnahagsástandinu í Frakklandi. Hann veit reyndar að hann þarf að taka hægri beygju, en sósíallistarnir í flokknum hans hafna því. Þannig mun áfram fjara undan Frökkum. og það er ekki Þjóðverjum að kenna.
![]() |
Frakkland er sjúkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2014 | 11:26
Grein í Fiskifréttum 7. ágúst
Sjávarútvegur - undirstaða lífskjara
Atvinna eða afþreying
Undirritaður átt spjall við kunningja sinn um daginn. Hann stundar strandveiðar og kom þeirri skoðun sinni á framfæri að það væri fleira en arðsemi og hagnaður sem skipti máli í sjávarútvegi; strandveiðar væru lífsstíll og hann vildi einfaldlega mæla afkomuna í öðru en krónum og aurum. Miðað við skoðun kunningja míns þá eru strandveiðar ekki atvinnugrein heldur afþreying og þá kemur upp í hugann spurning um hvort Íslendingar hafa efni á að nota sjávarútveg sem áhugamál og lífsstíl? Við erum að ræða um undirstöðu atvinnugrein sem þjóðin byggir lífsafkomu sína á! Sund og golf eru skemmtun og hvorugt stendur undir sér fjárhagslega en þar erum við klárlega að tala um afþreyingu. Slíkt bætir vissulega lífsgæði en kemur afkomu þjóðarinnar lítið sem ekkert við og hefur ekki áhrif á verðmætasköpun, gengi krónunnar eða kaupmátt Íslendinga. Sjávarútvegur er hinsvegar allt annað mál og afkoma hans hefur bein áhrif á lífskjör á Íslandi.
Botnfiskveiðar og vinnsla í Færeyjum
Færeyingar búa við neikvæða verðmætasköpun í botnfiskveiðum og vinnslu með árlegt tap upp á milljarð króna, sem sækja þarf þá í aðrar atvinnugreinar, t.d. laxeldi. Á Íslandi hafa botnfiskveiðar og vinnsla skilað um 15% hagnaði sem skilar um 46 milljörðum króna á ársgrundvelli. Verðmætasköpun er reyndar enn meiri vegna greiddra launa sem koma inn í hagkerfið og skapa áfram verðmæti. Ef við rækjum okkar sjávarútveg eins og frændur okkar í Færeyjum færu milljarða tugir forgörðum í Íslensku hagkerfi, sem draga myndi úr verðmætasköpun og lækka útflutningstekjur umtalsvert.
Efnahagsleg áhrif
Áhrifin yrðu mikil á efnahag landsmanna þar sem minni verðmætasköpun myndi m.a. lækka gengi krónunnar og þar af leiðandi kaupmáttur launa minnka með hækkun á verði innfluttrar vöru í krónum. Einhvern veginn er rómatíkin farin að fölna við þessa sviðsmynd og alvara lífsins fer að blasa við. Málið er að verðmætasköpun í sjávarútveg er ekki einkamál aðila í greininni; en hún hefur bein áhrif á afkomu Íslendinga og því mikið ábyrgðarmál að sjávarútvegur sé skynsamlega rekinn á Íslandi.
Samkeppnisyfirburðir
En hvernig stendur á þessum mun og hvað er það sem gefur Íslendingum slíka samkeppnisyfirburði, ekki bara yfir Færeyingum heldur flestum öðrum sjávarútvegsþjóðum? Það eru einkum tvö atriði sem skipta sköpum, kvótakerfið sem ýtir undir verðmætasköpun með aukinni framleiðni framleiðslu og fjármagns, og skynsamleg nýting fiskveiðiauðlindarinnar. Þó tekist sé á um ráðgjöf Hafró hefur stofnunin reynst góður ráðgjafi og mikill árangur náðst með skynsamlegri nýtingu þó oft hafi ákvarðanir verið sársaukafullar. Með stækkandi þorskstofni hefur t.d. kostnaður á veitt kíló snarlækkað og þannig ýtt undir verðmætasköpun.
Laun í fiskvinnslu
En þrátt fyrir velgengni í sjávarútvegi hefur ekki tekist að gera fiskvinnslu eftirsóknaverða og eru lág laun greininni til vansa. Sjávarútvegur þarf að vera eftirsóttur til fjárfestinga og laða að hæfa starfsmenn til að standa undir lífskjörum Íslendinga. Á því byggist afkoma sjávarbyggða og snýst reyndar um lífsbaráttu en ekki rómantík!
Gunnar Þórðarson MSc í alþjóðaviðskiptum
3.7.2014 | 11:57
Grein í Fiskifréttum 3. júlí 2014
Sjávarútvegur og byggðastefna
Verðmætasköpun í sjávarútvegi
Íslendingar standa sig ekki vel þegar kemur að framleiðni í samfélaginu og erum við þar á pari með suðurlöndum í samanburði, langt að baki hinum norðurlöndunum. Framleiðni er undirstaða verðmætasköpunar og lífskjör verða ekki bætt nema með kerfisbreytingum stjórnvalda.
Sjávarútvegur stendur upp úr þegar kemur að verðmætasköpun, hvort sem miðað er við sjávarútveg annarra landa eða aðrar starfsgreinar hérlendis. Með skýrri stefnu stjórnvalda í sjávarútvegsmálum þar sem hvatning væri til fjárfestingar, nýsköpunar og markaðssetningu á íslenskum fiski, væri enn hægt að bæta verðmætasköpun greinarinnar. En því miður er ríkisstjórnin stefnulaus þegar kemur að sjávarútvegsmálum og ráðherrar hóta útgerðinni nýjum lagasetningum vilji hún ekki axla ábyrgð á byggðastefnu stjórnvalda. Ríkið heldur á einum stærsta kvóta á Íslandsmiðum, 30,500 tonna þorskígildi, sem ekki hefur dugað til að snúa við byggðaþróun samfélaga sem eru í vanda. Núverandi stjórnvöld ætla að auka þennan kvóta enn frekar.
Sjávarútvegur og byggðastefna
Framundan eru miklar áskoranir í íslenskum sjávarútvegi og lykilatriði að honum sé búið umhverfi til að standast aukna erlenda samkeppni. Um þetta þarf að byggja pólitíska sátt í landinu og síðan snúa sér að öðrum þáttum sem geta aukið velmegun og verðmætasköpun þjóðarinnar. Með skuldugan ríkissjóð og krefjandi verkefni í heilbrigðis og lífeyrismálum er ekkert annað í stöðunni til bæta hér úr ef við viljum miða lífskjör okkar við aðrar norðurlandaþjóðir.
Það er ekkert náttúrulögmál að sjávarútvegur beri ábyrgð á byggðastefnu í landinu. Skoða þarf hvort betra sé að aðstoða byggðir með uppbyggingu á nýjum atvinnugreinum, í stað þess að einblína á byggðakvóta. Hóflegt veiðigjald gæti runnið í markaðssetningu á íslenskum fiski, í rannsóknir og þróun og hóflegur hluti gæti runnið í fjárfestingasjóð til að aðstoða byggðir í vanda. T.d. kostar 400 tonna byggðakvóti um 100 milljónir króna, og í raun meira ef litið er til þeirrar sóunar sem pólitísk úthlutun veldur. Þannig gæti sjávarútvegurinn hjálpað til að framfylgja byggðastefnu án þess að draga úr verðmætasköpun greinarinnar.
Tækifæri í laxeldi á Íslandi
Í Færeyjum eru botnfiskveiðar og vinnsla rekin með neikvæðri framlegð og hefur verið svo meira og minna um árabil. Öðru máli gegnir um laxeldi í Færeyjum en ársframleiðsla þar er komin upp fyrir 70 þúsund tonn. Engin atvinnugrein í Færeyjum skilar betri afkomu, þ.e.a.s. vergum hagnaði og launagreiðslur í fiskeldi eru rúmlega sex milljarðar króna og er þessi atvinnugrein undirstaða útflutnings þjóðarinnar með 40% hlutdeild. Á meðan störfum í sjávarútvegi hefur fækkað hefur störfum við eldi fjölgað, en um 750 manns höfðu atvinnu við fiskeldi í fyrra, á sama tíma voru starfandi 1.500 sjómenn. Athygli vekur að þar sem fiskeldi hefur tekið yfir störf í hefðbundnum sjávarútveg hafa laun hækkað.
Framleiðsla í fiskeldi á Íslandi var í fyrra um átta þúsund tonn en gert er ráð fyrir nærri þrettán þúsund tonnum í ár. Landfræðilega mun laxeldi framtíðarinnar byggjast upp á svæðum sem átt hafa í mestum byggðavanda. Á Íslandi er gert ráð fyrir að fiskeldi í sjó fari í 40 - 50 þúsund tonn á næstu 15 - 20 árum sem gera verðmæti upp á 30 milljarða á ári. Gætu verið tækifæri fyrir íbúa Dýrafjarðar og Önundarfjarðar í slíkri framtíðarsýn?
Það eru spennandi tímar framundan og mikil tækifæri fyrir íslendinga í fiskeldi. Gangi vonir manna um laxeldi eftir er staða íbúa á Vestfjörðum öfundsverð. Stjórnmálamenn þurfa að tryggja framgang fiskeldis á Íslandi en leyfa sjávarútveg að blómstra og skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið.
26.6.2014 | 16:00
Frásögn í sjómannablaði Vesturlands 2014 III
Beðið milli vonar og ótta á Hóli í Bolungarvík
Það voru gleðitíðindi þegar við fréttum að Sólrún væri komin að gúmbjörgunarbátnum - það er ekki hægt að þræta fyrir það" sagði faðir Grétars, Hálfdán Örnólfsson í viðtali við Morgunblaðið daginn eftir slysið. Það var opið fyrir bátabylgjuna í útvarpinu heima og þar heyrði dóttir mín, Kristín, þegar tilkynnt var að Svanur hefði sokkið og mennirnir væru komnir um borð í gúmmíbjörgunarbát. Það dimmdi yfir, er þessi fregn kom og líðanin hjá okkur var ekki góð, þótt við reyndum að vera sæmilega róleg. Við fylgdumst með með því sem fram fór á bátabylgjunni í allan dag og heyrðum þegar kallað var í gúmmíbátinn, en heyrðum aftur á móti ekki í honum. Þegar fregnin kom um að Sólrún væri búinn að finna hann þá létti okkur mikið"

Í þá daga var algengt að fylgjast með fjölskyldu og ástvinum á sjónum í gegnum bátabylgjuna, 2182, í útvarpinu. Mánudagurinn 29. janúar 1969 líður Kristínu Hálfdánsdóttur seint úr minni. Hún var tólf ára gömul og hafði fengið hettusótt og var því ein heima á Hóli. Þennan dag hafði pabbi hennar beðið hana endilega að hlusta á bátabylgjuna fyrir sig og fylgjast með hvernig gengi hjá Grétari syni sínum á sjónum. Hálfdán hafði áhyggjur þar sem veðurspáin var slæm og búast mátti við slæmu veðri þennan dag.
Kristín kveikti á útvarpinu og kom sér vel fyrir í stofunni heima á Hóli og fylgdist samviskusamlega með bátunum, stundum þurfti að leggja eyrun upp að útvarpinu til að heyra því misjafnlega heyrðist í mönnum. Þess á milli lá hún á stofugólfinu og las í bók. Allt í einu heyrir hún mjög skýra rödd Hálfdáns Einarssonar á Sólrúnu þar sem hann tilkynnti að heyrst hafi neyðarkall frá Svaninum. Báturinn væri sokkinn og mennirnir hefðu komist í gúmmíbát og nú þyrfti að hefja skipulega leit strax. Hann sagði að veðrið færi versnandi og stutt væri í myrkur því þyrftu allir bátar að tilkynna hvar þeir væru til að geta hafið skipulega leit.
Við þessar fréttir brá Kristínu mikið, hentist niður í símann og innan skamms var öll fjölskyldan komin heim og sat saman steinþegjandi við útvarpið þar sem þau hlustuðu á skipstjórana tala saman um leitina. Í fyrstu var fjölskyldan bjartsýn, en síðar dofnaði vonin eftir því sem leið á daginn og þegar Hálfdán skipstjóri sagði í stöðinni að nú væri komið myrkur og veðrið svo slæmt að líkur væru á að leit yrði hætt í bili , þá fór Kristín að hágráta. Hún upplifði að Grétar bróðir hennar og áhöfn hans hefðu hlotið sömu örlög og sjómennirnir á Heiðrúnu sem fórust árið áður og þau sömu og áhafnir á Traustanum og Freyjunni frá Súðavík ásamt Svaninum frá Hnífsdal. Þögnin í stofunni að Hóli var þrúgandi og enginn sagði neitt en sama hugsunin sótti þó að öllum. Svo leið dálítil stund og allt í einu heyrðist til Hálfdáns Einarssonar segja að hann teldi sig hafa séð rautt ljós á stjórnborða og ætlaði að skoða það nánar. Svo kom hann aftur og sagðist næstum því hafa keyrt á gúmmíbátinn, hann væri við hliðina á þeim og þar væru allir skipbrotsmenn heilir á húfi.

Það er ekki erfitt að ímynda sér gleðina sem braust út í stofunni á Hóli þegar fjölskyldan faðmaðist og fullvissuðu síðan hvort annað um að allan tímann hefðu þau verið sannfærð um að báturinn myndi finnast. En það liðu tveir dagar áður en þau sáu Grétar sem var veðurtepptur inn á Ísafirði og þegar samfundir loksins urðu var þetta allt orðið svolítið óraunverulegt. Kristínu er það minnisstætt hversu sár hún var yfir því að Grétar bróðir hennar kæmi ekki strax heim að Hóli, en faðmlagið sem hún fékk við endurfundinn gleymist aldrei og þá vissi hún að þessi martröð væri á enda.
26.6.2014 | 15:59
Frásögn í sjómannablaði Vesturlands 2014 II
Björgun skipsbrotsmanna af Svani ÍS 214
Eftir gifturíka björgun kom Sólrúnin í land í Bolungarvík um ellefu að kvöldi, töluvert ísuð enda tommu þykk stögin orðin um fet að gildleika. Í viðtali við fréttaritara Morgunblaðsins sagði skipstjórinn, Hálfdán Einarsson, að þeir hefðu verið að veiðum um tvær mílur norður af staðnum þar sem Svanurinn fórst. Varðskipið Þór hafði heyrt neyðarkall þar sem það lá undir Grænuhlíð og kallaði út á flotann hvort menn hefðu heyrt í neyðarbylgju á 2182. Neyðarkallið var skýrt og fumlaust þar sem gefin var nákvæm staðsetning slyssins.
Hálfdán brást fljótt við og byrjaði umsvifalaust að skipuleggja leit að skipbrotsmönnum, enda staðfest að þeir hefðu komist í björgunarbát. Þröstur Sigtryggson skipherra á varðskipinu tók síðan við skipulagningu leitar en leitarskilyrði voru afleit, hvassviðri og mikil sjór og gekk á með éljum.
Það var byrjað að skyggja og hugðist Hálfdán biðja skipsbrotsmennina um að skjóta upp blysi þar sem erfitt var að koma auga á gúmmí bát við þessar aðstæður. Hann áttaði sig á að sendistyrkur neyðartalstöðvarinnar fór að dofna og taldi því víst að hann væri að fjarlægjast björgunarbátinn. Hálfdán tók þá afdrifaríka ákvörðun um að snúa við og við það varð styrkur sendingar frá skipsbrotsmönnum sterkari. Þegar hér var komið var komið myrkur og þreifandi bylur og var komin upp sú hugmynd að fresta leit fram í birtingu næsta dag. Eftir að hafa haldið til baka frá flotanum í nokkurn tíma fann hann björgunarbátinn.
Haft var eftir Hálfdáni í Morgunblaðinu neyðartalstöðin var farin að dofna en skyndilega heyrðum við skýrt í stöðinni og skyndilega birtist ljósið á toppi björgunarbátsins við bakborðshlið Sólrúnar upp úr klukkan sex, en þá vorum við staddir um 18 mílur norður af Deild". Hálfdán taldi betra að láta varðskipið taka skipsbrotsmennina um borð, bæði væri betri aðstaða og tæki til björgunar til að ná mönnum um borð í myrkri og ólgusjó. Áhöfnin á Sólrúnu vissi ekkert um líðan mannanna um borð í gúmbátnum en um 20 til 30 mínútur liðu frá því að þeir fundu bátinn þar til skipsbrotsmenn voru komnir í öruggt skjól um borð í Þór. Það kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins að skipstjórar í Bolungarvík sem þátt tóku í leitinni, báru mikið lof á Jón, skipverja Svansins sem hafði með talstöðina að gera í gúmbátnum, leikni hans og kunnáttu ásamt yfirvegun við þessar aðstæður. Jónvar einmitt nýkominn af björgunarnámskeiði og kunni því vel til verka. Augljóst má vera að hefði hann ekki gefið út staðsetningu á slysstað strax í upphafi hefði leitin orðið mun ómarkvissari. Með staðsetningu höfðu björgunarmenn upphafspunkt og gátu út frá honum reiknað út rek gúmbátsins af völdum strauma og vinds.Hálfdán Einarsson átti einstaklega gæfuríkan feril sem skipstjóri og var eftirsótt að komast í skipsrúm með honum. Hann var hógvær maður, en bar svo sterkan persónuleika að allir hlustuðu þegar hann lagði eitthvað til málanna. Þekkt var það að hann byrsti sig sjaldan. Ef hann þurfti sem skipstjóri að skipa mönnum fyrir og honum þótti ekki nægilega vel eða hratt brugðist við, endurtók hann orð sín, án þess að hækka róminn og bætti við, segi ég". Það nægði alltaf. Einar Hálfdánsson sonur hans var stýrimaður þennan örlagaríka dag með föður sínum. Einar naut sömuleiðis mikillar virðingar allan sinn starfsferil og það mjög að verðleikum. Báðir voru þeir feðgar miklir aflamenn, fóru vel með og einstaklega glöggir og minnugir á alla hluti.
Fyrir margt löngu heyrði undirritaður viðtal við Þröst Sigtryggson skipherra á varðskipinu Þór þar sem minnst var á þessa atburði. Bar hann mikið lof á skipstjóra Sólrúnar sem hann sagði að hefði átt frumkvæði að skipulagi leitar, þar sem hann reiknaði út strauma og rek og síðan var flotanum raðað upp í einfaldri röð og siglt yfir það svæði sem líklega var að gúmbátinn væri að finna. Hann naut aðstoðar Hálfdáns við að skipuleggja leitina enda vandfundinn betri maður sér við hlið í krefjandi verkefni.
Þungu fargi var létt af Bolvíkingum þegar fréttir bárust af björguninni en mikil blóðtaka hafði verið meðal sjómanna við Djúp árin á undan.
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
-
astromix
-
ekg
-
stefanbjarnason
-
golli
-
vikari
-
gunnarpetur
-
vestfirdir
-
gudni-is
-
ea
-
ladyelin
-
gp
-
altice
-
hjolaferd
-
kaffi
-
komediuleikhusid
-
rabelai
-
ziggi
-
huldumenn
-
helgi-sigmunds
-
sigrunzanz
-
hordurhalldorsson
-
baldher
-
hjaltisig
-
lotta
-
kjarri
-
bjarnimax
-
jovinsson
-
smjattpatti
-
eirmor
-
vefritid
-
saemi7
-
siggisig
-
maggij
-
lehamzdr
-
contact
-
gauisig
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 287142
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar