Frelsi og hagsæld

Bloggari hefur lítið látið til sín taka í umræðu um hugsanlega umsókn til ESB eða IceSave hörmungarnar sem tröllriðið hafa þjóðinni undanfarið.  Hann hefur fengið bágt frá sumum vinum sínum vegna þessa sem nú efast um trúfestu hans til frelsis og framfara þjóðarinnar.  Fyrir utan það að hafa lítið borð fyrir báru í illvígum átökum, en bloggari býr einsamall í fjarlægu landi og saknar fjölskyldu sinnar og vina, hafa stjórnmálin á Íslandi valdið svo miklum vonbrigðum að varla er komandi nálagt þeim.

Bloggari man þá tíð, fyrir 1991, þegar allt var bannað á Íslandi og ríkið skammtaði ferðamanagjaldeyrir úr hnefa og menn fóru í fjármálaráðuneytið til að fá leyfi til að taka erlent lán.  Fyrirhyggjan var alger og höftin á þjóðina mikil.  Fyrir utan virkismúra Íslands var allt annað upp á teningnum og þeir sem Íslendingar vilja ber sig saman við, vestur Evrópubúar, gátu boðið íbúum sínum upp á mun betri lífskjör.  Allt breyttist þetta með Viðeyjarstjórninni þar sem byrjað var á að taka til í kerfinu, einfalda og skera niður báknið, og auka frelsi til athafna.  Samningurinn um Evrópskt efnahagsvæði 1994, EES, gerði svo gæfu muninn og þjóðin komst loks með tærnar þar sem vestur Evrópa var með hælana.  Upptaka regluverks ESB í viðskiptum þar sem fjórfrelsið er þungamiðjan í þessu bandalagi þjóða um viðskipti hafði gríðarleg jákvæð áhrif á Ísland.

Nú má deila um hvort þetta hafi verið til góðs þar sem þjóðin hafi síðan algerlega farið fram úr sér og misnotað það frelsi sem henni var falið.  Það má þá segja eins að rétt sé að hafa alla í fangelsi, enda myndi það útrýma glæpum.  Það að menn hafi farið fram úr sér og stjórnmálamenn hafi brugðist skyldu sinni þíðir ekki að leggja eigi niður stjórnmál.  Að menn hafi farið fram úr sér með nýtilkomið frelsi og því eigi ófrelsi að ríkja og taka eigi upp fyrirhyggju ríkisins.  Enda kennum við stjórnmálamönnum um hvernig fór, og því ættum við þá að treysta þeim fyrir öllum hlutum til framtíðar, meðal annars að reka fyrirtækin.

Bloggari er ekki tilbúinn að bakka til gamla tímans með höftum og fyrirhyggju.  Í dag geta Íslendingar flutt hvert sem er innan EES og fengið sér vinnu.  Fjórfrelsið er leiðarvísir þjóðarinnar til nýrrar bjargálna og það er best tryggt með inngöngu í ESB.  Upptaka evru á svo að fylgja á eftir, enda sjá allir skynsamri menn að krónan er ónýt.

Það er þyngra en tárum tekur að horfa upp á stöðu þjóðarinnar varðandi IceSave.  En skaðinn er löngu skeður.  Hér verður ekki talað um alla þá vitleysu sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði í þessu mikilvæga máli.  Setja stúdent yfir samningaviðræðum sem síðan lætur hafa við sig þvílíkt grobb viðtal í Mogganum og bætir því við að hann hafi ekki getað hugsað sér að hafa málið hangandi yfir sér í sumarleyfinu, og því ákveðið að ganga frá samningum.  Eins klikkað og þetta hljómar þá er ekki við öðru að búast af fólki af hans sauðarhúsi, sem aldrei hafa skilið hvaðan auður kemur og telja að hann hrynji af himnum ofan.  Það þurfi bara að útdeila honum.

Miklu verra er að hugsa um alla vitleysuna sem átti sér stað eftir bankahrunið í október.  Sjálfstæðismenn sem sátu þar við stjórnvöldin, ég tel ekki bankamálaráðherrann með, sýndu fullkomið ráðleysi við vandanum.  Vanda sem hafði blasað við þeim frá upphafi ársins.  Þeir máttu vita að með því að ábyrgjast inneignir bankanna á Íslandi, skuldbundu þeir sig um leið til að gera slíkt hið sama um reikninga á EES.  Á sama tíma ákváðu Þeir af mikilli góðmennsku að greiða niður peningamarkaðsjóði gjaldþrota bankana um 280 milljarða króna, og láta skattgreiðendur borga.  Öll þessi vitleysa um að stofna nýja banka hefur sennilega kostað þjóðina hundruðir milljarða króna.  Það sem við horfum á núna í þinginu eru afleiðingar af allri vitleysunni, þar sem enn ráðalausari stjórnmálamenn halda í tauminn.

En bloggari er sjálfum sér samkvæmur þegar kemur að frelsinu.  Því má ekki fórna og Ísland má ekki einangrast út í miðju Atlantshafi.  Bloggari treystir ekki Íslenskum stjórnmálamönnum til að tryggja frelsi og efnahaglega velsæld þjóðarinnar.  Hann telur að þjóðinni sé betur borgið með samningum við nágranna sína, sem deila með henni gildum og arfleið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Jú að sjálfsögðu fór ég áratug fram í tímann.  Takk fyrir ábendinguna.  Ég laga þetta.

Gunnar Þórðarson, 15.7.2009 kl. 05:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 283920

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband