Armageddon

 

Bloggari þorir varla orðið að opna fyrir erlendu sjónvarps-frétta rásirnar.  BBC, CNN og Sky News eru með Ísland á heilanum.  Það mætti halda að um stórþjóð væri að ræða sem skipti verulegu máli í efnagaslífi heimsins.  En málið er að ,,útrásarvíkingarnir" voru orðnir svo stórtækir að gjaldþrot þeirra hefur töluverð áhrif í nágrannalöndum okkar, þó stærð hagkerfa þeirra séu tröllaukin miðað við það Íslenska.

Það var viðtal við leigubílstjóra á BBC í gær sem sagðist hafa lagt fjörutíu ára sparnað sinn inn á Icesave reikning í Bretlandi.  Hann var reiður út í ,Íslendingana" og hvernig þeir höfðu farið með hann fjárhagslega.  Viðtal var við sveitarstjórnarmenn, meðal annars borgarstjóra Lundúna, sem tapa verulegum upphæðum á Icesave.  Borgarstjórinn sagði að hætta yrði við lagningu neðanjarðar-lestar-kerfis vegna Íslendinganna.  Málið er að reikningar sem sveitarfélög leggja fé inn á njóta ekki ríkisverndar.  Slíkir viðskiptavinir eru kallaðir ,,upplýstir" fjárfestar og talin regin munur á þeim eða hinum almenna borgara.

En málið er þetta.  Hverjir eru Íslendingarnir?  Bloggari átt ekkert í Íslensku bönkunum og hafði ekki einu sinni viðskipti við þá með því að eiga fé á innlánsreikninum.  Bankarnir voru reknir að einkaaðilum og komu Íslenska ríkinu ekki að öðru leiti við en að þeir féllu undir bankaeftirlitið.  Leigubílstjórinn og sveitarfélögin bera því meiri ábyrgð en bloggar, þó hann sé Íslenskur en þeir ekki.  Þetta hefur ekkert með þjóðerni að gera og frekar vafasamt að Íslenskur ríkisborgari eigi að bera ábyrgð á þessum fjárfestingum fram yfir þá sem taka ,,upplýsta" ákvörðun um að gera slíkt.  Eiga þannig þátt í öllum vitleysisganginum sem átt hefur sér stað.

Viðbrögð Gordon Brown´s og Alexsender Darling fjármálaráðherra eru vægast sagt einkennileg.  Mennirnir hafa algerlega hlaupi út undan sér í þessum málum.  Að láta viðtal í gegnum GSM síma duga til að byrja milliríkjadeilu, við útlending sem talar ekki ensku sem fyrsta tungumál, er furðulegt.  Það er augljóst að báðir þessir menn eru farnir á taugum og láta tilfinningarnar bera sig af leið.  Íslendingar eru svo sem öllu vön frá Bretum, sem dæmi settu þeir á okkur hafnbann 1952 og þá voru það Rússar sem komu okkur til bjargar og keypt allan fisk af Íslendingum.

Bloggar vill trúa því á þessu augnabliki að Íslendingar séu ef til vill að fara bestu leiðina.  Ekki að bjarga bönkunum og þar með þeim sem hafa lánað þeim peninga, heldur láta þá rúlla og byggja nýa á rústunum.  Bandaríkjamenn og Bretar ætla að fara þá leið að ríkisvæða banka, bjarga þar með lánveitendum þeirra en taka allt af hluthöfunum.  Í því má ekki gleyma að stór hópur hluthafa er einmitt ekki ,,upplýstur" og naut þannig ekki sérfræðiráðgjafar við fjárfestingar sínar.  Þeir voru flestir með ráðgjafa sem unnu í þessum bönkum og hér verður fullyrt að þeir gættu ekki hagsmuna þessa fólks, heldur bankana sem þeir unnu hjá. 

Varðandi Bandaríkjamenn og Breta er ekki nokkur leið að átta sig á því hvert þeirra stefna leiðir þá.  Hverjar verða ábyrgðir ríkisjóða þegar upp verður staðið.  Bandaríkjamenn skulda yfir 10 trilljón dollara og vandséð hvernig þeir ætla að greiða það niður í framtíðinni.  Bretar vita ekkert hvað tekur við með ,,björgun" stærstu banka og hversu miklu verður velt yfir á skattgreiðendur með slíkum aðgerðum.  Íslenska leiðin er sennilega ill-skárst.  Það er nákvæmlega ekkert sem segir að Íslensk þjóð eigi að greiða lán sem bankarnir tóku út um allan heim til að fjármagna ,,útrás víkingana".  Að sjálfsögðu nutu þessir bankamenn þess að ríkisjóður Íslands stóð vel, nánast skuldlaus, en það var aldrei hægt að ganga út frá því sem vísu að ríkisábyrgð væru á þessum lánum.  Engin reiknaði reyndar með Armageddon, nema Ívar Pálsson, en það er því miður skollið á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 283944

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband