Ofbeldi vörubílstjóra

Þessar aðgerðir vörubílstjóra eru óþolandi.  Þarna eru menn að misnota lýðréttindi til að mótmæla á friðsaman hátt, rétt sem aðeins lítill hluti jarðarbúa hafa.  Nota ofbeldi og stofna meðborgurum sínum í stór hættu fyrir nú utan öll óþægindin sem fólk verður fyrir.

Ég hef fulla samúð með kröfu bílstjóra vegna reglusetninga um vökulög, þar sem taka á upp kerfi sem nauðsynlegt er út í Evrópu, þar sem menn eru að aka þúsundir kílómetra á hverjum legg.  Ísland er hreinlega ekki nógu stórt, landfræðilega, til að bera slíkar reglur.

Hinsvegar þegar kemur að eldsneytisverði er við einhvern annan að sakast en íslensk stjórnvöld.  Eldsneytisgjaldið er í krónutölu og hækkar því ekki við hærra olíuverð.  Það ætti að vera morgunljóst en ef menn eru að tala um virðisaukann, þá er það allt annað mál.  Ef hann væri lækkaður á eldsneyti myndi ríkið tapa þeim tekjum, þar sem ekki skiptir máli hvar virðisaukinn er tekinn.

Miklar umræður voru um landflutninga í fyrra og voru margir sem töluðu fyrir ríkisstyrktum sjóflutningum, þar sem landflutningar greiddu ekki fyrir þann kostnað sem þeir valda. 

Með lægri vsk og afnámi þungaskatts gætu tekjur af landflutningum orðið minni en kostnaður samfélagsins af þeim er.  Samkvæmt upplýsingum sem ég hef stendur það í járnum í dag að flutningabíll greiði þann kostnað sem hann veldur.  Í formi slits á vegum, mengunar (staðbundið vandamál) hávaða og öðrum óþægindum, slysum og útblæstri gróðurhúsaloftegnda (hnattrænt vandamál)

Það virðist vera af viðtölum við forystumenn þessara bílstjóra að ábyrgð þeirra og skilningur sé í lágmarki.  Ég vona að ekki þurfi að koma til stórslyss áður en almenningi verður nóg boðið af þessu ofbeldi.


mbl.is Margra kílómetra bílaröð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alexandra Briem

Mikið er ég hjartanlega sammála þér.

Alexandra Briem, 1.4.2008 kl. 16:25

2 Smámynd: B Ewing

Mikið er ég hjartanlega ósammála þér.  Réttast væri að þú afmáir þessa fullyringu um sjálfan þig á blogginþínu. Fordómalaus frelsisunnandi, gæti ekki verið meiri lygi.

B Ewing, 1.4.2008 kl. 16:33

3 Smámynd: Ari Arason

Sammála þér Gunnar. Reyndar hélt ég að það væri bærileg sátt hér á landi og almennt í V-Evrópu að skattleggja mengandi kolefnaeldsneyti. Og verðið er víst einna lægst hér í Evrópu eins og margoft hefur komið fram á mbl.is.

Ari Arason, 1.4.2008 kl. 16:37

4 identicon

Gunnar minn er ekki allt lagi með þig. Hérna áður fyrr þá voru landflutningar á vegum skipafélaganna kölluð framhaldsfrakt og bar ekki VSK þannig að ekki var þar keppt á jafnréttisgrundvelli. Oki og svo þá var hérna áður fyrr greiddur þungaskattur af akstri fluttningarbíla og vörubíla. Þeir fjármunir ef allir yrðu notaðir til vegamála á þeim vegum sem þeir innheimtust á þá væri ekki ástand vega eins og raun ber vitni.

 Það að heira og lesa um að atvinnubílstjórar ógni öryggi er helbert helvítis kjaftæði þeir mótmæltu fyrir um þremur árum í samvinnu við lögreglu og þar bar engan árangur. 

Þessar aðgerðir eru öllum til hagsbóta og það er ekki og verður ekki á ábyrgð mótmælenda ef það gerist eitthvað

Og passaðu þig ekki ganga til hvílu í rúmi það verða 99% allra dauðsfalla í rúmum.

Lifið heil 

Vilbogi Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 17:00

5 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Það er grundvallaratriði að halda sig við rök og skynsemi í umræðu um málin.  Þegar málstaðurinn er slæmur er gripið til upphrópana.  Ég sé t.d. ekki hvað mat mitt á mér um að vera fordómalaus frelsisunandi og málefni aðgerða bílstjóra.  Ekkert af því sem ég sagði í pistlinum gengur geng fordómaleysi og frelsishugsjón.  Menn mega mótmæla, en ekki brjóta landslög.

Gunnar Þórðarson, 2.4.2008 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 283945

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband