Í fiskimannaþorpi

Ráðuneyti 052Í dag fórum við félagarnir norður í land til að afhenda löndunarstöð, sem Íslendingar hafa byggt, með formlegum hætti til fiskimannasamfélagsins í Kandakuliya.  Íslendingar hafa byggt ellefu byggingar á átta stöðum til að styrkja fiskimannasamfélög á Sri Lanka.  Byggingarnar hafa verið afhentar samvinnufélögum fiskimanna til afnota, en þær þjóna margskonar tilgangi.  Meðal annars er aðstaða til lagfæringar á veiðifærum, hreinlætisaðstaða (oft sú eina boðlega í þorpinu), fundarstaður, geymsla fyrir utanborðsmótora og skrifstofa fyrir samvinnufélagið.

Í dag var sú ánægjulega undantekning að húsnæðið í Kandaluliya var afhent nýstofnuðu kvenfélagi þorpsins.  Í þorpinu eru tvö samvinnufélög fiskimanna sem barist hafa á banaspjótum og gátu ekki komið sér saman um rekstur löndunarstöðvarinnar.  Höggvið var á hnútinn með sameiginlegu kvenfélagi þorpsins, sem tók forlega við rekstri hússins í dag.  Stjórn félagsins bauð okkur upp á hressingu eftir mikil hátíðarhöld, og voru konurnar spenntar fyrir þeim möguleikum sem húsið gæti fært þeim.  Þær ætla að nota hluta þess undir barnaheimili sem gerir þeim kleift að koma börnum sínum í pössun og geta þá aðstoðað menn sina við útgerðina.  Þær geta til dæmis unnið við lagfæringar á netum eins ofið reipi úr kókós sem notuð eru í veiðarfæri.  Kvenfélagið hugðist einnig koma sér upp bókasafni í húsinu til að bæta aðgengi að þekkingu í samfélaginu.

SteintaflanÞað var mikið af konum þarna í dag og ólíkt því sem ég hafði séð á myndum af fyrri afhendingum á löndunarstöðvum, höfðu þær sig mikið í frammi.  Áður sá maður karlmennina fremst en konur og börn í bakgrunninum utan við bygginguna.  Nú voru þær komnar alla leið í míkrófóninn til að halda ræður.  Ísland var nefnt í hverri setningu, reyndar var það eina sem ég skildi þar sem allt fór fram á Shinalee.

Sjómenn á þessum slóðum róa á litlum trefjaplastbátum með utanborðsmótor.  Flestir róa með net og leggja á sjóinn seinnipart dags og landa aflanum í dagrenningu.  Í sumum löndunarstöðvunum sem við höfum afhent er uppboðsmarkaður við hliðina, þar sem fiskurinn er seldur fiskihöndlurum sem síðar koma þeim áfram á markað, oftast í boxi aftan á mótorhjóli.

Það vakti athygli okkar hversu mikið var af vel byggðum fallegum húsum á þessum slóðum.  Íbúar svæðisins eru að miklu leyti kaþólskir og sækja margir þeirra vinnu til Ítalíu.  Þar vinna þeir margvísleg þjónustustörf og senda nánast alla hýruna heim til ættingjanna.  Þetta dugar til að byggja myndarlegt hús og koma sér vel fyrir að öðru leiti.  Þetta á að sjálfsögðu ekki við um Stjórn kvennfélagsinsfiskimennina sem eru með lægst launuðustu stéttum landsins, kunna ekki ensku og hafa enga möguleika á vinnu erlendis.

Á heimleiðinni, um fjögurra tíma akstur hvora leið, komum við í tveimur löndunarstöðvum sem við höfum byggt.  Önnur var afhent í apríl s.l. og hin verður afhent við hátíðlega athöfn á næstunni.  Við erum bjartsýnir á að þessi grunnstofnun fyrir sjávarþorpin bæti lífsgæði íbúana og auki möguleika þeirra til að byggja upp betra samfélag.

 

 
Hátíðarhöld við afhendingu

 

Sendiráðsbílinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Pálsson

Gaman að sjá þetta, Gunnar. Hvernig er það svo með veiðina, er hún einhver af viti fyrir þessa aðila, eða eru stærri bátar utan að búnir að ofveiða upp í fjörusteina? Í einu af fyrstu bloggunum sagðir þú:

„Allt bendir til þess að flestir fiskistofnar séu ofveiddir, hvort sem litið er til strandveiða eða úthafsveiða. Hinsvegar er aukin þekking innan greinarinnar og betri stjórnsýsla alltaf til bóta og leiðir af sér einhverskonar stjórn á ástandi sem er stjórnlaust og dregur úr sóun.“

Ef strandveiðin er mjög lítil vegna ofveiði stríðsástands, er þá eitthvað af viti sem veiðist og hægt er að skrá, eða er það kannski bara í soðið í smá sjálfsþurftarbúskap?

Hafðu það gott, þótt Stína sé komin heim upp á klaka. 

Ívar Pálsson, 18.9.2007 kl. 18:06

2 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Sæll Ívar.  Allt bendir til þess að ofveiði sé stunduð hér, bæði hjá dagróðrarbátum og eins hjá  fjöldagabátum.  Við eru ekki að hjálpa þeim að veiða meira en erum þó með verkefni til að stytta túra hjá túnfiskbátum.

Aðeins 25% af afla Sri Lanka er staðbundnir botnfiskastofnar. Restin eru flökkustofnar og fangaklípan í algleymingi. Engum dettur í hug að minka veið því næsti aðili mun bara veiða fiskinn.  En eitt af okkar verkefnum hér er að telja bátana, halda bátaskrá og byrja svo að skrá aflann.  Það er grunnurinn en síðan þurfa þeir einhverskonar kvótakerfi, sem er grunnurinn að því að gera veiðarnar arðbærar. 

Gunnar Þórðarson, 19.9.2007 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 283957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband