Landið eitt kjördæmi?

KJÖRDÆMASKIPAN

Er ástæða til að breyta stjórnarskrá og gera Ísland að einu kjördæmi?  Mun það auka lýðræði og réttlæti í samfélaginu?  Núverandi stjórnarskrá gefur nokkuð svigrúm til að jafna atkvæðisrétt milli landshluta og spurning hvort ekki er nóg að gert.  Stjórnarskráin gerir ráð fyrir að hægt sé að breyta mörkum kjördæma með lagasetningu ásamt því að hnika til fjölda þingmanna í hverju kjördæmi til jöfnunar.  Að auki getur landskjörstjórn fært þingsæti milli kjördæma ef fjöldi á kjörskrá eru helmingi færri í einu kjördæmi en öðru í því skyni að jafna vægi atkvæða á landinu.  Er lýðræðinu og réttlætinu fullnægt með því?

 

JAFNT VÆGI ATKVÆÐA Í EVRÓPUSAMSTARFI

Það dytti engum í hug að jafna að fullu atkvæðavægi þjóðríkja innan ESB.  Með nýju stjórnarskránni (Lissabonsáttmálanum) var þessu jafnað nokkuð en engu að síður er Lúxemborg með 6 þingmenn á Evrópuþinginu en Þýskaland með 99.  Það jafngildir að rúmlega 83 þúsund landsmanna eru bak við hvern þingmann í Lúxemborg en 707 þúsund í Þýskalandi.  Þetta er nýleg niðurstaða sem kom í kjölfar stækkunar ESB úr 15 í 25 og síðar 27.  Ef menn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að jafnt atkvæðamagn bak við hvern þingmann væri réttlát og sanngjarnt, væri Lúxemborg með aðeins einn þingmann.

 

Þegar bandaríska stjórnarskráin var samþykkt 1787 var tvennt ofarlega í huga höfunda; aðskilnaður þings og framkvæmdavalds og  jafna vægi fámennra fylkja gagnvart fjölmennum.  Þannig litu höfundar til mikilvægis þess að minni fylki yrðu ekki undir gagnvart þeim stærri.

 

Það má heita regla frekar en undartekning í lýðræðisríkum að tryggja réttindi þeirra sem minna mega sín og að raddir þeirra heyrist við ákvarðanatöku sem varðar grundvallar réttindi og lífsgæði.  Hægt er að spyrja sig þess hvort slík jafnaðarhugsjón sé réttlát og sanngjörn.

 

Á AÐ ENDURVEKJA TVÍSKIPTINGU ALÞINGIS?

Þær hugmyndir hafa heyrst að endurvekja tvískipt Alþingi til að verja hagsmuni landsbyggðar gagnvart því ofurvaldi höfuðborgarsvæðis sem alger jöfnun atkvæðavægis myndi hafa í för með sér ef landið yrði gert að einu kjördæmi.   Sagt hefur verið að það mætti til dæmis gera með því að efri deild þingsins væri endurvakin þar sem sætu fulltrúar landshlutanna.  En er þetta rétta leiðin?  Er ekki verið að auka flækjustigið í stjórnsýslunni.  Er þá ekki betur heima setið en af stað farið og betra að hafa kerfið einfalt og skilvirkt með einni þingdeild.

Við verðum að muna að Íslendingar eru aðeins 330 þúsund talsins.  Efri og neðri deild þingsins voru einmitt sameinaðar sínum tíma af því að ekki var talið tilefni til tvískiptingar Alþingis.  Sú ákvörðun sem er tæpra tveggja áratuga gömul, hefur lítið verið gagnrýnd síðan.

 

LANDSBYGGÐINNI VEITIR EKKI AF ÁHRIFUM SÍNUM

Landsbyggðin á sannarlega undir högg að sækja.  Atvinnulífið er víða of einhæft og einkennist af  frumframleiðslu, þar sem atvinnutækifærum hefur fækkað við aukið vægi þjónustu í hagkerfinu.  Stór hluti skatttekna landsbyggðarinnar endar í Reykjavík, enda er þar nánast öll stjórnsýsla og stærsti hluti þjónustunnar.  Á þetta hafa fræðimenn nýlega bent.   

Það væri því verið að bæta gráu ofan á svart ef íþyngja ætti landbyggðinni með því að gera landið að einu kjördæmi.  Þá fyrst myndi rödd landsbyggðarfólks hljóðna í þjóðmálaumræðunni  og áhrif þeirra á Alþingi stórlega minnka. 

Landsbyggðinni veitir ekki af þeim áhrifum sem hún hefur í dag, ef hún á að komast af í framtíðinni.  Að gera Ísland að einu kjördæmi er rothögg fyrir hinar dreifðu byggðir landsins.  Vilji menn feta þann veg þá verður sú stefnumótun að liggja fyrir.  Að það sé þjóðarvilji að leggja niður landsbyggðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvert á atkvæðavægi í alþingiskosningum að vera ?Þarna togast á tvenn sjónarmið. Annars vegar grunnhugsunin einn maður - eitt atkvæði. Hins vegar sú staðreynd að íbúar landsins eru ekki jafnsettir hvar sem þeir búa, staða sem fjölmörg ríki viðurkenna og taka mið af. Við verðum að viðurkenna bæði sjónarmiðin, þó þau gangi hvort gegn öðru. Núverandi kjördæmaskipan er afleit, sérstaklega eru landsbyggðakjördæmin of stór og sundurleit til að mynda þá einingu sem kjördæmi þarf að gera. Til að gera langt mál stutt, þá væri best að taka upp kjördæmaskipan eins og hún var fyrir síðustu kjördæmabreytingu, kjördæmin yrðu þá átta. Úthluta síðan hverju kjördæmi ákveðnum fjölda þingsæta, segjum einu til þrem þingsætum, óháð fjölda kjósenda. Þannig yrði úthlutað átta til tuttugu og fjórum þingsætum, óháð fjölda kjósenda. Að öðru leyti væri atkvæðavægi jafnt. Með þessu ynnist margt, landsbyggðakjördæmin yrðu ekki þau skrímsli sem þau eru í dag, byrjað yrði á þeirri jöfnun sem talin væri nauðsynleg, og breytingar á þingmannafjölda eftir búsetuþróun gerðist sjálfkrafa. Ég hef ekki fastmótaða skoðun á heildarfjölda þingmanna.

   Þórólfur Sveinsson, kosninganúmer 2567

   thorolfu.blog.is

Þórólfur Sveinsson (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 13:28

2 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Ég get tekið undir það sem þú segir.  Núverandi kjördæmi eru allt of víðfeðm.  Ég þekki vel til þingmanna hér í N-vestur kjördæmi og þeir einfaldlega komast ekki yfir að sinna því.

Eitt kjördæmi, svo ég tali nú ekki um persónukjör er afleit hugmynd og almennt viðurkennt að slíkt er ekki gott fyrir lýðræðið.  Þar sem slíkt kerfi er í notkun, t.d. Ísrael eru óteljandi flokkar og endalaus stjórnarkreppa.  

Gunnar Þórðarson, 15.11.2010 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 283963

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband