Gróusögur

Það eru góðar fréttir að Íslendingar hafa sótt formlega um aðstoð frá IMF.  Þetta eru viðsjáverðir tímar og nánast óhugnarlegt að fylgjast með því sem er að gerast í efnahagsmálum heimsins.  Málið er að kanarífuglinn er dauður en námumennirnir eru ekki sloppnir út.  Það stefnir í stórkostleg vandræði víðar en á Íslandi.

Á meðan bloggari fylgist gaumgæfilega með atburðum heima og heiman, áhyggjufullur en samt enn með vonarneista um að allt fari þetta nú vel, eru sumir að spinna sögur uppúr mjög svo vafasömum staðreyndum.  Þessir aðilar nærast á ástandinu og leggja allt út á versta veg og ætla mönnum allt það versta.  Að sjálfsögðu eru þeir sem mest eru áberandi og mestu ábyrgðina bera, þeir sem verða fyrir þessu aðkasti.

Davíð Oddsson er mönnum sérstaklega hugleikinn og menn hika ekki við að beygja til staðreyndir til að gera söguna mergjaðri.  Hann ber ekki bara ábyrgð á ástandinu á Íslandi, heldur öllum heiminum líka.  Kastljósviðtal á að hafa komið Bretum til að setja hryðjuverkalög á Íslendinga, og skiptir litlu þó það hafi fengið staðfest frá Darling sjálfum, að hann hafi ekki haft hugmynd um viðtalið við Davíð þegar hann tók sínar ákvarðanir gegn Íslendingum.  Davíð á að hafa komið hruninu af stað með ummælum sínum í umræddum Kastljósþætti.  Rædd er um að hann sé eini seðlabankastjóri í heiminum sem ekki hafi hagfræðimenntun.  Lítið er talað um að hinir tveir bankastjórarnir eru hagfræðingar en Davíð hefur reynslu sem æðsti yfirmaður efnahagsmála Íslands til tólf ára. 

Í þessu sambandi er gaman að geta þess að seðlabankastjóri Bretlands kom hruni af stað um allan heim í gær með óvarlegum yfirlýsingum um væntanlega kreppu þar í landi.  Ameríkaninn Greenspan gerði gott betur í gærkvöldi þegar hann sagði að ástandið væri alvarlegra en ímyndunarafl hans hefði náð yfir, og hrinti því út af brúninni sem Bretinn skildi eftir.  Davíð sagði ekkert í umræddum þætti annað en það sem þjóðin þurfti á að halda á þeim tíma.  Maður með mikla reynslu sem var að stappa stáli í þjóð sína.  Það hefði hinsvegar verið heppilegra ef hann hefði ekki verið seðlabankastjóri í þessu viðtali.  Og það skal einnig viðurkennt stjórn Seðlabankans í peningamálum þjóðarinnar undanfarið vekur upp miklar efasemdir.  En það er nauðsynlegt að skoða þessi mál þegar um hægist og málin verða upplýst, en ekki geta sér til og spinna sögur.

Miklar sögur hafa verið sagðar af fjármálaráðherra og hversu lélegur hann væri í ensku, enda hefði hann með heimskulegu símtali sínu til starfsbróður síns í Bretlandi, komið á milliríkjadeilu.  Nú er komið í ljós, svo óyggjandi er, að Darling hrindi í starfsbróðir sinn á Íslandi, sem sat þá á ríkisstjórnarfundi, og allt samtalið ber með sér að breski ráðherrann var mjög óstöðugur í samtalinu og illa upplýstur um þau málefni sem hann vildi ræða um.  Sem Íslendingur ber ég höfuðið hátt hvað þetta samtal varðar og ljóst að allar sögurnar voru komnar frá Gróu gömlu á Leiti.

groa_a_leiti.pngDómstóll götunnar er venjulega vondur og ráðlegt að bíða réttra upplýsinga áður en niðurstaða er fengin.  Fettaþurrðin er óbærileg en hún réttlætir ekki gróusögur.

Bloggari var ánægður með sinn mann í kastljósinu á miðvikudagskvöldið.  Geir sýndi mikla yfirvegun og þekking á því sem rætt var um, en Sigmar spyrill var sjálfum sér og Sjónvarpinu til skammar.  Það er óþolandi að spyrill missi gjörsamlega stjórn á skapi sýnu í viðtali sem þessu.  Okkur sem þyrstir í fréttir að atburðum, kemur ekkert við persónulegt álit eða ergelsi spyrilsins.  Hann á að fá upplýsingar frá forsætisráðherra en ekki æpa hann í kaf.  Stundum komu þrjár spurningar í einu þar sem Geir var ekki gefið færi á að svara fyrir látum í spyrlinum. Yfir það heila hafa Íslenskir fréttamenn staðið sig ömurlega í þessu gjörningaveðri öllu saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 283945

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband