Harmleikur almenninga

IMG_6492Umræðan um fiskveiðistjórnun Íslendinga hefur verið áberandi undanfarna tvo áratugi, og ekki að furða sig á því þar sem miklir hagsmunir þjóðarinnar eru í húfi.  Íslendingar skera sig úr í samfélagi þjóðanna þegar kemur að stjórnun fiskveiða og umgengni um auðlindina og eru ein af örfáum þjóðum heims sem reka fiskveiðar á viðskiptalegum grunni þar sem greinin er hagnaðardrifin.

Mér varð hugsað til þessa þegar ég dvaldi á strandhóteli á Sri Lanka yfir jólin og fylgdist með veiðum fiskimanna með strandnót.  Notaðir eru tveir bátar til að róa með nótina út á víkina og henni síðan kastað í hálfhring.  Úr hverjum væng liggur lina upp á land sem síðan er dregin upp á höndum, en við töldum 47 manns við ádráttinn.  Nótin er gríðarstór og þessi var framleidd úr snæri ofnu úr kókoshnetum, fyrir utan pokann sem var úr gerviefni.  Nótinni var kastað um sjö leitið um morguninn og búið að draga hana upp á strönd fyrir hádegi.  Aflinn var um 20 kg á aðfangadag en aðeins um 5 kg á jóladag.  Við reiknuðum út að afrakstur fiskimannsins væri að meðaltali u.þ.b. einn dollar fyrir dagsverkið.  Eigandi nótarinnar tekur helminginn og hitt skiptist á milli þátttakanda við ádráttinn.

IMG_6553Á átti síðar samræður við menn sem vel þekkja til fiskveiða á Sri Lanka og kom fram hjá þeim að fyrir 20 árum hafi verið algengt að veiðin væri nokkur hundruð kíló í kasti.  Ef marka má frásögn þeirra (sérfræðinga í veiðum) er veiðin 10% af því sem hún var áður.  Almennt eru menn sammála um að ofveiði sé um að kenna á grunnslóð landsins en lítið fer fyrir veiðistjórnun stjórnvalda.

Gerrett Harding skrifaði fræga grein árið 1968 sem hann kallaði „Tragety of the Common" (harmleikur almenninga)  Í einföldustu útfærslu má lýsa þessu fyrirbæri með sögu af fimm bændum sem búa í kringum dal þar sem þeir deila sameiginlegum bithaga.  Bithaginn er almenningur og fljótlega er hann fullnýttur, þ.e.a.s. ágangur er jafn mikill og afrakstur hans.  Þá er komið að svolítilli leikjafræði en hver bóndi hugsar með sér að hagkvæmt sé að bæta við hjörðin, enda sé lítill sem engin breytilegur kostnaður samfara því.  Hver bóndi hugsar einnig á þann veg að ef hann fjölgi ekki þá munu hinir gera það.  Þrátt fyrir að allri bændurnir geri sér fulla grein fyrir afleiðingunum sem þetta kallar á, ofbeit á bithagann, fjölgar hver um sig í hjörðinni.  Niður staðan er harmleikur almenningsins þar sem ofbeitin veldur hríðfallandi fallþunga og í framhaldi af því minnkandi tekjum allra bændanna.  Til lengri tíma verður landið örfoka, blæs upp og hrun verður í dalnum.

IMG_6562Nákvæmlega það sama gerist þar sem um sameiginlega fiskveiðiauðlind er að ræða.  Á Sri Lanka er haldið á að veiða ofveidda stofna og veiði á sóknareiningu hefur hrunið, öllum þeim sem stunda greinina til tjóns.  Hefðu Íslendingar ekki tekið þá sársaukafullu ákvörðun að setja á kvótakerfi upp úr níunda áratug síðustu aldar, væru lífskjör þjóðarinnar með öðrum og verri hætti en raunin er.  Íslendingar eru í efsta sæti þjóða heims í lífsgæðum, ef marka má nýlega úttekt sem framkvæmd er af alþjóðastofnum og meðal annars rataði inn í helstu fréttastofur á Sri Lanka í síðasta mánuði.

Fiskveiðistjórnun er samt meira en kvótakerfi, en það var sett á vegna gríðarlegs taps á útgerðinni þar sem fiskveiðiflotinn var orðin allt of stór miðað við afrakstur auðlindarinnar.  Við notum vísindamenn Hafrannsóknarstofnunnar til að fylgjast með ástandi nytjastofna og gera tillögur um veiðimagn.  Einhverskonar kerfi þarf til að ákveða síðan veiðimagn sem vonandi er í takt við ráðleggingar vísindamanna okkar.  Hafrannsóknarstofnun leggur síðan til friðun svæða til að gefa fiskistofnum möguleika á að viðhalda sér.   Fiskistofa fylgist með veiðileyfum báta og lönduðum afla og ásamt Landhelgisgæslunni sér um eftirlit með að lögum og reglum sé hlýtt.  Allt gengur þetta út á að hámarka fiskveiðaarðinn, fiskiðnaðinum til heilla og ekki síður Íslensku þjóðinni.

Í dæmi um veiðar á Sri Lanka sem hér er talað um fer öll innkoman í kostnað.  Engin af þeim sem stunda veiðarnar geta lagt hluta af innkomunni til hliðar til að auka afkomuöryggi fjölskyldu sinnar.  Ef einhver arður væri myndi hann fara í bankann sem síðar myndi lána hann út að jafnið níu sinnum.  Slíkt eykur hagvöxt og möguleika á nýjum sóknarfærum fyrir þjóðina alla.  Þó að kvótaleiga kunni að fara í taugarnar á fólki, sem telur að gengið sé á réttlæti fyrir hagkvæmni, er sá ,,kostnaður" hluti af fiskveiðaarðinum.  Þar eru fjármunir sem streyma úr fiskiðnaði sem arður og hægt að nota við ný sóknarfæri þjóðarinnar.

IMG_6568En umræðan hefur oft verið í skötulíki á Íslandi.  Margur maðurinn ræðst fram með skoðanir sínar án þess að taka tillit til þessara grunnþátta.  Slá um sig meiningar litlum stóryrðum og setja sig aldrei inn í málin.  Benda ekki á hvaða leiðir séu færar vegna harmleiks almenninga og tilgangurinn snýst oftar en ekki um persónulega hagsmuni þeirra.  Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að skilja ekki að einhver geti borið hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti og geti litið út fyrir þrönga eiginhagsmuni sína.  Það verður að gera kröfu til þess að menn haldi sig við rök en ekki upphrópanir, sérstaklega þá sem hafa mikil áhrif á þessa umræðu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Sannleikanum er hver sárreiðastur.

Gunnar Þórðarson, 2.1.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 283953

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband