Borgaraleg réttindi á Íslandi

Fátt skiptir mig meira máli en borgarleg réttindi og staða einstaklings gagnvert ríkisvaldinu. Þær tvær pólitísku stefnur sem mest hafa brotið á mannréttindum eru sósíalismi og þjóernishyggja. Fyrrnefnda stefnan er talin hafa tortrýmt 100 milljónum mannslífa og sú síðari um 25 milljónum, bara á síðustu öld.

Þess þvegna hef ég, sem frjálshyggjumaður, verið hugsi yfir því hvernig staðið hefur verið að eftirmálum "hrunsins". Nærtækast í því er aðförin að Geir Haarde sem kallar fram ótta við það fólk sem þar fór fram. En ekki síður hvernig staðið hefur verið að rannsókn og refsingum gagnvart athafnamönnum sem taldir eru valdir af hruninu. Einhvernvegin er eins og ríkisvaldið og saksókn þess stjórnist af hefnigirni og þörfinni á að þóknast blóðþorsta almennings. Slíkt er auðvitað algerlega á skjön við borgaraleg réttindi og réttarkerfið eins og það er hugsað. Refsingar eru til að fæla menn frá því að brjóta lög, betrumbæta þá eða halda hættulegum einstaklingum frá samfélaginu. Alls ekki að þjóðfélagið sé að hefna sín á þeim vegna misgjörða þeirra. Allir eiga sinn einstaklingsrétt og ófært að nánast afmennska menn vegna þess að þjóðin kenni þeim um hrunið. Eftir Kastljósþáttinn í gærkvöldi þar sem Sigga Dögg ræddi við Ólaf í Samskipum er ég mög hugsi yfir því máli. Í rauninni fór hún algerlega halloka í samtalinu. Rökþurrð og komin út í horn. Ég hafði ekki velt þessu máli mikið fyrir mér en við megum ekki gefa okkur að einhver sé glæpamaður og taka þá réttinn af honum sem einstakling. Fjölmiðlar verða að skoða málin án þess að elta almenningsálitið og hafa kjark til greina staðreyndir. Ég óttast að ríkisvaldið og fjölmiðlar hafi farið offörum í þessum hrunmálum!


mbl.is Fordæmisgefandi fyrir fjölda mála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þú ruglar þjóðernishyggju saman við þjóðernisofstæki en þetta er tvennt mjög ólíkt.

Enginn hefur dáið vegna þjóðernishyggju en margir hafa dáið vegna ofstækisviðhorfa.

Þú myndir ekki leggja kristna trú að jöfnu við írska lýðveldisherinn er það nokkuð?

Guðmundur Ásgeirsson, 18.5.2017 kl. 11:48

2 identicon

Þjóernishyggja, og ofstæki ... eiga oft samleið.  Og það er fyrir allar hellur að nefna "Irska lýðveldisherinn" í þessu sambandi. Nema viðkomandi telji að Írar hafi engan rétt á eigin lýðveldi. Sá hinn sami, ætti að kynna sér þá "helför" sem breska samveldið olli Írum, og öðrum keltneskum minnihlutahópum.

Síðan er ég alveg sammála Gunnari í þessu máli ... Íslenska ríkið, og almenningur hefur hagað sér eins og "þjóðernis-ofstækismenn" í þessu máli.  Fyrst, er mönnum hampað og verðlaunaðir sem "Víkingar", og síðan eru þeir krossfestir þegar peningana þraut.

Hér var ekki "réttarfar" á dagskrá, heldur var almenningur að leita sér að blórabögglum til að grýta ... og "tækifærissinnaðir" pólitíkusar notfærðu sér skrílin, til eigin framfæris.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 18.5.2017 kl. 19:08

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bjarne. Ég var ekki að taka neina afstöðu til írska lýðveldisins heldur að nota hryðjuverkasamtökin IRA sem hluta af samlíkingu til þess að sýna fram á fáránleika þess að spyrða heilbrigð og hófsöm lífsviðhorf sem fela í sér hollustu við sitt eigið samfélag, saman við ofstæki eða ofbeldi af einhverju tagi. Þú fyrirgefur mér það vonandi.

En. Nei þú ert ekki sammála Gunnari, því þú notaðir hugtakið þjóðernis-ofstæki en hann notaði hugtakið þjóðernishyggja. Á þessu tvennu er reginmunur. Þjóðernishyggja er viðurkennd og heilbrigð afstaða, bæði sem stjórnmálaskoðun og sem almennt lífsviðhorf. Alveg eins og t.d. félagshyggja. Hverskonar ofstæki, hvort sem það þjóðernisofstæki, kynþáttaofstæki eða annað ofstæki, er aftur á móti oftast óheilbrigt og ýtir gjarnan undir ofbeldi eða útskúfun.

Flestir Íslendingar sem ég þekki eru af fyrrnefndu gerðinni, fólk sem er annt um land sitt og þjóð og á sama tíma friðsamt og ber virðingu fyrir öllum mönnum. Hugtakið þjóðernishyggja lýsir engu slæmu og er ekki blótsyrði. Ekki frekar en það er nein skömm að því að aðhyllast félagshyggju eða trúa á guð. Allt þrennt er einfaldlega bara lífsviðhorf.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.5.2017 kl. 20:11

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég hef aldrei getað skilið það og hvenær gerðist það, að vera stoltur að landinu sem fólk býr í sé ofstæki?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 19.5.2017 kl. 02:09

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jóhann. Rétt svar er að það gerðist aldrei. Málflutningur sem kennir þjóðernishyggju við ofstæki er einfaldlega falskur og hefur alltaf verið það.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.5.2017 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 283945

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband