Ok

 

Sumarfrí 2011 004Það er gott að vera í tjaldi í Húsafelli, þar sem reglur svæðisins tryggja næði fyrir góðan nætursvefn og skrílslátum er algerlega úthýst.  Okkur hjónunum var því ekkert að vanbúnaði að taka daginn snemma og arka upp á Okið, sem teygir sig í tæplega tólf hundruð metra yfir sjávarmál og nærri þúsund metra yfir Húsafelli. 

Sumarfrí 2011 012Það eru tvær megin leiðir til að ganga á Okið.  Annarsvegar í norður upp úr Kaldadal, sem er auðveldari leiðin, og hinsvegar í suður upp frá Húsafelli.  Sú leið tekur um sex til sjö tíma og eftir staðgóðan morgunverð var lagt af stað frá tjaldinum og gengið upp öxl Bæjarfells austan Bæjargils.  Við hverja hundrað metra hækkun eykst útsýnið og mest áberandi er Eiríksjökull sem blasir við í norð-austri.  Hvítársíðan norðan Hvítár þar sem fallegustu bæjarstæði landsins lúra niður eftir ánni er þess virði að skoða í góðum kíki.

Sumarfrí 2011 015Þegar komið er upp mesta brattan tekur við mosavaxnir melar sem eru þó ótrúlega þægilegir undir fót og ferðin gengur greiðlega upp aflíðandi hlíðar öskjunnar.  Okið er systurfjall Skjaldbreiðar og hefur myndast á svipaðan hátt, þar sem tiltölulega heitt hraun rennur upp úr gígöskju í toppnum og rennur síðan niður hlíðarnar í hrauntaumum sem storkna síðan og mynda dyngju.  Í gömlum sögnum er talað um fjöllin tvö sem tröllkonubrjóst.

Við gengum fram á rjúpu með unga, sem var ótrúlega smár miðað við árstíma.  Ég hafði næSumarfrí 2011 017rri stigið ofan á ungann í ógáti, en fuglarnir voru ótrúlega samlitir umhverfinu og felubúningur þeirra nánast fullkominn.  Hér er óvinurinn aðallega fálkinn sem þrátt fyrir haukfrá sjón missir af bráð sinni og rjúpan kemur unganum á legg.

Þegar komið er upp í um níuhundruð metra hæð taka við jökulís sem eru leifar af jökli sem áður prýddi Okið.  Efsta lagið var reyndar snjór síðan í vor, en undir því glittir í gjósku, sennilega úr Eyjafjallajökulsgosinu.  Á yfirborðinu runnu lækir og höfðu markað sér farveg niður í ísinn, en hann er ósprunginn á þessum slóðum.  En göngufærið var afbragð, fast undir fót en stammt vegna gjósku og ískristalla.  Maður markaði varla í ísinn og brakaði í hverju spori.

Sumarfrí 2011 027Undirlagið var þó erfiðara þar sem ísinn þraut en þar tók við stórgrýti og skriður.  Síðasti spölurinn á toppinn var ósköp þreytandi en þeim mun betra þegar vörðunni á brún öskjunnar var náð.  Þar var sest niður í glampandi sól, norðan golu og endalausu skyggni.  Það er alltaf gaman að virða fyrir sér tinda sem hafa verið sigraðir í fyrri fjallgöngum.  Í norðri blasti Baula við og minnti á sínar skriðurunnu hlíðar.  Í norð-austri var það Eiríksjökull með sína hvelfdu ísbungu, enda þurfti GPS tæki til að finna há-toppinn.  Í norð-vestri skartaði Snæfellsjökull sýnu fegursta og fjallgarður Ljósufjalla austur af honum.  Yfir Þórisjökli mátti rétt grilla í höfðann á Hlöðufelli sem sigrað var 2007 og er eftirminnilegt sem eitt stórkostlegasta útsýnisfjall landsins.  Í suðri mátti sjá blika á blátt Þingvallavatnið og gufubólstrar Nesjavalla teigðu sig til himins í góðviðrinu.

Sumarfrí 2011 029Útsýnið var stórkostlegt og Langjökull teygði sig endalaust í norður, drifhvítur baðaður sólargeislum.  Undir fótum okkar var askjan í Okinu þar sem undanfarið hlýskeið hefur brætt jökulinn og stöðuvatn er byrjað að myndast.  Brúnin ofan öskjunnar er á annað hundrað metra há og nokkur hundruð metrar í þvermál.  Þetta var góður staður til að taka upp nestið og njóta þess með stórkostlegu útsýni vestan Kaldadals.

Leiðin til baka í Húsfell gekk vel en nú var haldið niður vestan megin Bæjargils, sem er bæði styttri og fallegri leið.  Gilið er úr líparíthrauni og skartar öllum regnbogans litum enda vinsæl gönguleið upp vesturbrúnina upp að vörð sem geymir gestabók fyrir þá sem þangað halda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 283938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband