22.4.2009 | 07:43
Dugandi starfsstjórn í efnahagsmálum
Bretar ætla að taka erlend lán upp á 200 milljarða punda á þessu fjárhagsári. Mér sýnist það vera jafngilda um 150 milljörðum króna, yfirfært á íslenskar aðstæður. Það eru miklir peningar og Bretar eru verulega áhyggjufullir yfir þessu, sértaklega hvernig ríkið ætlar að fjármagna endurgreiðslur þessara lána á komandi árum. En þessu fylgir mikil veisla breskra stjórnvalda þar sem stór hluti fjármagnsins fer eyðslu til að örva hagkerfið. Slíkt er drauma staða stjórnmálamannsins enda geta menn leyft sér hvað sem er í eyðslu þessa dagana. Það var óráðsía sem orsakaði vandann og einhvernvegin ætla menn síðan að nota sömu aðferð til að lækna meinið.
Íslendingar eru í enn meiri vanda og ekki liggur fyrir ennþá hversu stór hann er. Þrátt fyrir ,,kraftmikla" starfsstjórn Vinstri Grænna og Samfylkingar undir verndarvæng Framsóknar, sem mynduð var til að taka á brýnustu vandamálum vegna bankahrunsins hefur lítið gerst í mikilvægustu málunum.
Staða gjaldmiðilsins er hörmuleg en krónan hefur lækkað um 18% síðan stjórnin tók við, og engin stefnumótun hefur verið kynnt vegna þessa.
Bankarnir eru ekki enn komnir með efahagsreikning og því veit engin hver staða þeirra er. Þeir gætu þess vegna verið tæknilega gjaldþrota. Fyrri ríkistjórn þvingaði þá til að setja 200 milljarða inn í peningamarkaðsbréf bankana, sem var algerlega óskiljanlegt mál þar sem þegnum landsins var stórlega mismunað með þeirri aðgerð. Nú eru þeir látnir fjármagna dellu eins og tónlistarhúsið, sem varla getur talist forgangsmál þessa síðustu og verstu tíma.
Ekki er búið að taka á vanda heimila né fyrirtækja. Að vísu hefur þessari ríkisstjórn tekist að koma mikilvægustu atvinnugreininni í landinu, sjávarútvegnum, í uppnám með ábyrðalausum tillögum um fyrningarleið í kvótamálum. Einnig á að koma í veg fyrir að fyrirtæki í framleiðslu á sjávarfangi geti tryggt sér hráefni með eigin skipum, þar sem allur fiskur á að fara á markað.
En reyndar var ákveðið að byggja menningarhús í NV kjördæmi, helsta vígi Vinstri Grænna, sem mun örugglega hjálpa til við þann vanda sem blasir við íslensku þjóðinni í dag.
Enn er ósamið um IceSave og Egde reikninga og því veit almenningur ekki hvort hann þarf að borga 40 milljarða eða 700 milljarða króna.
Á meðan Ísland brennur hafa þessir menn eytt tíma alþingis breytingar á stjórnarskrá, án þess að fá um það breiða samstöðu þingsins, sem er algjört stílbrot í íslenskri stjórnmálasögu. Undanfarin ár hefur glumið í eyrum landsmanna frá þessu fólki, að sjálfstæðismenn hafi sýnt Alþingi óvirðingu og almennt skorti virðingu fyrir löggjafarvaldinu. Núverandi ríkisstjórn treystir hinsvegar Alþingi ekki til að breyta stjórnarskránni heldur stóð til að kjósa til þess skuggaþing. Slíkt skuggaþing endurspeglar nefnilega vilja þjóðarinnar, sem Alþingi gerir þá ekki? Málið er auðvitað að stjórnarskráin er sáttmáli þjóðarinnar og þingið hefur alla burði til að takast á við breytingar á henni, en með breiðri samstöðu allra flokka.
En stjórnarskráin er ekki málið í augnablikinu, það eru efahagsmálin. Þeim á að gefa gaum en ekki afvegaleiða þjóðina með lýðskrumi, til að afla atkvæða í komandi kosningum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
- astromix
- ekg
- stefanbjarnason
- golli
- vikari
- gunnarpetur
- vestfirdir
- gudni-is
- ea
- ladyelin
- gp
- altice
- hjolaferd
- kaffi
- komediuleikhusid
- rabelai
- ziggi
- huldumenn
- helgi-sigmunds
- sigrunzanz
- hordurhalldorsson
- baldher
- hjaltisig
- lotta
- kjarri
- bjarnimax
- jovinsson
- smjattpatti
- eirmor
- vefritid
- saemi7
- siggisig
- maggij
- lehamzdr
- contact
- gauisig
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.12.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er einfaldlega ekki rétt að ekki sé búið að taka á vanda heimilanna í landinu, kynntu þér málið á www.island.is!
Guðrún Helgadóttir, 22.4.2009 kl. 21:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.