30.3.2009 | 12:32
Davíð kvaddur
Loksins er búið að reka afa gamla út af heimilinu og guð má vita hvar hann drepur niður fæti næst. Afi (Davíð Oddsson) hefur brotið og bramlað allt á heimilinu (Sjálfstæðiflokknum) undanfarin misseri og hafði einhvernvegin tök á húsbóndanum (Geir Haarde) að ekki var hægt að hrófla við honum. En svo í fermingaveislunni (Landsfundinum) hélt hann ræðu sem gekk fram af heimilisfólkinu og féll þar með í ónáð. Loksins er það öllum ljóst að afi er bara orðin ruglaður og tími kominn til að setja þau vandamál sem hann hefur skapað, aftur fyrir sig og takast á við framtíðina. Það sem fyllti mælinn voru dylgjur í garð vammlauss manns sem ekki hafði til annarra saka unnið en hafa deilt á aðferðir afa, þó á faglegan hátt.
Gamanlaust þá hefur enginn veitt Davíð og mislukkaðri peningamálastefnu meira aðhald en Vilhjálmur Egilsson. Ítrekað benti hann á þær afleiðingar sem hávaxtastefnan gæti haft og flest það ræst sem hann varaði við. Það var þó ekki fyrr en hann tók að sér formennsku í endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins og gaf út heiðarlega skýrslu um stjórnarsetu flokksins, sem steininn tók úr.
Það er virðingarvert af Geir Haarde að taka upp hanskann fyrir Vilhjálmi á landsfundinum og frábært að salurinn hafi tekið undir með lófaklappi og jafnvel risið úr sætum við orð fyrrverandi formanns. Það eru þung spor hjá fyrrverandi aðdáenda Davíðs sem stjórnmálamanns að setja þessar línur á blað. Og ömurlegt að farsæll stjórnmálamaður hafi lokið ferli sínum með þeim hætti sem raunin er.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
- astromix
- ekg
- stefanbjarnason
- golli
- vikari
- gunnarpetur
- vestfirdir
- gudni-is
- ea
- ladyelin
- gp
- altice
- hjolaferd
- kaffi
- komediuleikhusid
- rabelai
- ziggi
- huldumenn
- helgi-sigmunds
- sigrunzanz
- hordurhalldorsson
- baldher
- hjaltisig
- lotta
- kjarri
- bjarnimax
- jovinsson
- smjattpatti
- eirmor
- vefritid
- saemi7
- siggisig
- maggij
- lehamzdr
- contact
- gauisig
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála þér Gunnar með þessa fjölskyldusamlíkingu. Það vantar þó í myndina að afi var harðstjóri sem hafði þvílíkt ofurvald á fjölskyldunni allri að árum saman hafði enginn þorað að andmæla honum, allra síst húsbóndinn.
Besta dæmið um ofurvald Davíðs kom í ljós á landsfundinum þegar hann byrjaði á því að setja sjálfan sig í fótspor frelsarans og kastaði svo skít í allar áttir í saklaust fólk. Þá stóð allur salurinn upp og klappaði fyrir honum lengi upp á stalinskan máta. Ótrúleg samkoma !
Tryggvi Guðmundsson, 30.3.2009 kl. 15:20
Ja kvur andskotinn Tryggvi. Var það svo? Varst þú þarna?
Stína, sem var á staðnum, sagði mér að karl skrattinn hefði verið skemmtilegur og fyndinn. En var hann þá bara ekki á röngum stað? Hann hefði átt að vera í Þjóðleikhúsinu!
Gunnar Þórðarson, 30.3.2009 kl. 17:29
Sá í sjónvarpinu kaflann frá Golgata og svo nokkrar af drulluslettunum. Já, hann getur verið skemmtilegur, en svona menntaskólahúmor hefur varla passað inn í Fjallræðu nr. 2.
Tryggvi Guðmundsson, 30.3.2009 kl. 17:39
Það er alveg rétt hjá þér Tryggvi. Það verður erfitt hjá mér að takast á við þig í gufunni í haust! Ég þarf einhverskonar uppörvun fyrir þau átök. Það er erfitt þegar himnarnir hrynja yfir mann.
Þessi ræða hjá Davíð var til skammar en mér svíður mest að fundargestir hafi klappað sig auma í lófunum yfir þessu bulli.
Gunnar Þórðarson, 31.3.2009 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.