20.11.2008 | 11:59
Davíð og Seðlabankinn
Leitin að sökudólgunum er enn í fullum gangi. Síðasta útspil seðlabankastjóra var áhrifamikið og sem fagmaður í pólitík fær Davíð 5 stjörnur fyrir þetta skemmtilega útspil. Hinsvegar fær hann enga stjörnu sem seðlabankastjóri fyrir innleggið á morgunverðafundi Viðskiptaráðs.
Málið er að þetta gengur ekki upp hjá Davíð. Í febrúar situr hann fund út í Bretlandi sem fær kalt vatn til að renna milli skils og hörunds á honum, vegna upplýsinga erlendra sérfræðinga á stöðu íslenska bankakerfisins og þeirrar ógnun sem hagkerfi landsins stafar vegna þess. Í maí gefur hann út skýrslu þar sem bankakerfið fær fulla skoðun, að það standi traustum fótum og framtíð íslenska hagkerfisins sé mjög björt. Í millitíðinni afnemur Seðlabankinn þá litlu bindiskyldu sem sett var á innlán bankakerfisins.
Seðlabankinn hafði öll vopn í hendi sér til að takast á við hættulegt ástand og sérstaklega Icesave reikninga Landsbankans. Hann gat sett bindiskyldu á þessa reikninga, svona 20 til 50 % sem hefði komið í veg fyrir að þessi hættulegu skammtíma innlán færu úr böndunum. Og koma í veg fyrir að Landsbankinn gæti lánað þessa peninga út svona 14 falt, því miður í frekar vafasöm útlán miðað við sögu síðustu vikna.
En Davíð stráði fræi efasemda á téðum fundi sem hefur orðið allri þjóðinni til umhugsunar. Hann býr yfir vitneskju um hvað olli þeirri hörðu og afdrifaríku ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar að setja hryðjuverkalög á Íslendinga. Eitt er víst að ef Davíð segist hafa þessar upplýsingar þá eru þær til og lúra tímabundið í hans höndum.
Orðið á götunni segir að viðskiptaráðherra hafi orðið svona hastarlega á í samskiptum sínum við Alexender Darling fjármálaráðherra Bretlands. Þessi vitneskja hafi komið Davíðs hafi komið Samfylkingunni út í horn í þeirri refskák sem teflt hefur verið í kringum stöðu hans í Seðlabankanum. En spurt verður að leikslokum í þessari spennandi þáttaröð: Hvar keypti Davíð ölið?
En það er nánast ógnvekjandi á þessum síðustu og verstu tímum að Seðlabankinn standi í stórpólitískum átökum í landinu, þar sem skotið er föstum skotum, meðal annars á ríkistjórn landsins. Davíð verður að skilja að hans pólitíski ferill er liðinn þar sem hann gegnir nú starfi embættismanns. Reyndar ætti hann að skilja sinn vitjunartíma og fara á þau ríflegu eftirlaun sem hans bíða eftir langan og farsælan stjórnmálaferil. Davíð gerði góða hluti fyrir þjóðina en nú er mál að linni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
- astromix
- ekg
- stefanbjarnason
- golli
- vikari
- gunnarpetur
- vestfirdir
- gudni-is
- ea
- ladyelin
- gp
- altice
- hjolaferd
- kaffi
- komediuleikhusid
- rabelai
- ziggi
- huldumenn
- helgi-sigmunds
- sigrunzanz
- hordurhalldorsson
- baldher
- hjaltisig
- lotta
- kjarri
- bjarnimax
- jovinsson
- smjattpatti
- eirmor
- vefritid
- saemi7
- siggisig
- maggij
- lehamzdr
- contact
- gauisig
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þar sem tveir framsóknarmenn koma saman, þar er spegill.
Ein vísa
Blessaður sagði Bangsímon
og fáðu þér kaffi
það er aldrei upsilon
á eftir vaffi.
Blótaðu ekki bróðir minn,
böl það vekur nauða.
Engum hjálpar andskotinn,
allra síst í dauða.
Kveðja Nikulás
Nikulás Þórðarson, 21.11.2008 kl. 08:07
Ja hérna, hérna, Gunni. Nú veistu hvernig Pétri postula leið þegar hann afneitaði frelsara sínum. Hann gerði það raunar þrisvar þannig að þú átt eftir tvö skipti.
Bestu kveðjur, við söknum þín úr gufunni.
Tryggvi Guðmundsson, 25.11.2008 kl. 10:22
Skemmtileg færsla. Nú er ég forvitin að vita hvað viðskiptaráðherra varð á sem geta réttlætt aðgerðir Bretanna. Ég er nefnilega fjúkandi vond út í þá. Þú fylgist vel með þó þú sért langt í burtu ... gott hjá þér. Ég held að það sé rétt að hækka átti bindiskylduna strax þegar þetta lá fyrir og fylgjast með að greitt yrði í tryggingasjóð lána. kveðja Kolbrún.
Kolbrún Stefánsdóttir, 25.11.2008 kl. 10:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.