21.6.2008 | 09:21
Ísland í dag
Ég horfði á þáttinn á CCN sem fjallaði um nýtingu Íslendinga á endurnýjanlegum orkugjöfum og var meðal annars viðtal við forseta vorn, Ólaf Ragnar Grímsson.
Ég hef aldrei verið aðdáandi Ólafs né pólitískur stuðningsmaður. Og þar sem hann hefur verið duglegur við að pílitískvæða forsetaembættið hef ég heldur ekki geta stutt hann né kosið, í öll þau skipti sem hann hefur verið í framboði.
En ég verð að viðurkenna að hann stóð sig vel og lýsti Íslandi sem útópíu í nýtingu endurnýjanlegrar orku og dró upp mynd fyrir alheim af þessari vistvænu og umhverfisvænu þjóð. Ég verð að viðurkenna að ég var bara rígmontinn og þjóðarstoltið ólgaði í æðum mínum yfir þættinum, og ekki síst framlagi ORG til hans. Ég var reyndar búinn að sjá hluta af þessu í síðustu viku í Úganda, en þar birtist þetta frá Suður Afrískri stöð sem auglýsing frá Shell. Reyndar kom það einnig fram hjá CNN að Shell er sponsor fyrir þessum þætti. Mér skilst að hann verði sýndur af og til í allan dag og á morgun, sunnudag.
Það er óhætt að segja að sjónarhóllinn hafi verið annar en þegar önnur fræg íslensk persóna, Björk, tjáir sig um þessi mál. Það er með ólíkindum hvernig hún fær sig til að skrumskæla þessa hluti til að láta þá líta verr út en ástæða er til.
Ég spái því reyndar að hagur Strumpu, íslensku þjóðarinnar, eigi eftir að vænkast mikið á næstu misserum. Við erum orkuútflytjendur og eigum mikla möguleika á að stórauka orkuframleiðslu á ókomnum árum. Það er gott mál þegar orkuverð hefur margfaldast og allt útlit fyrir að ekkert lát verði af því.
Í BNA er 750 bílar á hverja þúsund íbúa, og sennilega fleiri á Íslandi. Á Indlandi eru þeir 10 en Indverjar telja að þeir þurfi að vera 100 á hverja þúsund íbúa, til að geta búið þjóðinni ásættanleg kjör og minka þá gríðarlegu fátækt sem þar ríkir. Ástandið er ef til vill skárra í Kína en margt er þó líkt með þessum ofurríkjum hvað mannfjölda varðar. Það eru einmitt þessi tvö ríki sem leiða eftirspurn sem er langt umfram framboð og keyrt hefur olíuverðið upp.
En það eru Bandaríkjamenn sem eru orkusóðar heimsins. Á meðan Japanir hafa dregið markvisst úr olíunotkun sinni, um 15% á síðustu 10 árum, hafa Bandaríkjamenn enn aukið sína notkun, sem hefur verið um 40% af heimsnotkun. Keyrandi um á stórum eyðslufrekum bílum enda haldið verði á eldsneyti í lágmarki miðað við aðrar þjóðir. Fyrrverandi forseti, Jimmy Carter setti allskyns reglur til að minka olíunotkun, meðal annars um lágmarksnýtingu bílvéla. Hann lét setja sólarrafhlöður á þak Hvíta hússins til að ganga á undan þjóðinni með góðu fordæmi. Þetta var eftir eina olíukreppuna en þegar henni lauk og verðið lækkaði hafði Ronald Regan tekið við sem forseti. Hans fyrsta verk var að afnema hluta af lögum og reglum Carters og lét rífa draslið af þakinu. En Japanir héldu sínu skriði þó verðið lækkaði og eru rækilega að uppskera ávöxt erfiðisins í dag.
Talandi um orkuverð og notkun þá get ég ekki stillt mig um að segja frá umferðinni hér á Sri Lanka og Úganda, þaðan sem ég er nýkominn. Flestir bílar hér eru innfluttir notaðir frá t.d. Japan, þar sem þar er ekki talið hagkvæmt að keyra um á gömlum slitnum skrjóðum. Enda reykir annar hver bíll þannig að allt hverfur í þykkan mökk. Bæði er eldsneytisnýtin léleg og mengun mikil. Japanir flytja út þessi vandamál sem er ágætt fyrir þá.
En héðan frá Colombo er það helst að frétta að þær fáu götur í miðborginni þar sem tvístefnuakstur var leyfður, var breytt í einstefnu um síðustu helgi. Þetta setur umferðina algjörlega í hnút en ástæðan eru öryggismál. Þegar þú átt von á hryðjuverkum upp á hvern dag í höfuðborginni, er eldsneytisnýting og mengun ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Það er semsagt talið erfiðara að sprengja tiltekna menn ef ekki er hægt að mæta þeim í umferðinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
- astromix
- ekg
- stefanbjarnason
- golli
- vikari
- gunnarpetur
- vestfirdir
- gudni-is
- ea
- ladyelin
- gp
- altice
- hjolaferd
- kaffi
- komediuleikhusid
- rabelai
- ziggi
- huldumenn
- helgi-sigmunds
- sigrunzanz
- hordurhalldorsson
- baldher
- hjaltisig
- lotta
- kjarri
- bjarnimax
- jovinsson
- smjattpatti
- eirmor
- vefritid
- saemi7
- siggisig
- maggij
- lehamzdr
- contact
- gauisig
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kveðja til þín, vinur. Við erum víst í fámenna orkuliðinu sem mun samt færa vöruskiptajöfnuðinn á núllið fyrir árslok! Fyrst jöklarnir bráðna á fullu, þá er eins gott að nýta fallvatnið, því ekki verður það geymt.
Kíktu á Heklubloggin hans Stefáns og mitt á eftir.
Ívar Pálsson, 1.7.2008 kl. 15:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.