30.5.2008 | 07:42
Við miðbaug
Það er ótrúlega notalegt í Úganda. Ef æðri máttarvöld hefðu fengið manni hitastillir myndi maður stilla á hitastigið hér í Kampala. Það er nákvæmlega eins og maður vill hafa það. Ólíkt Sri Lanka getur maður opnað gluggann á skrifstofunni og látið notalegan blæinn leika um sig. Lofkælingar eru óþarfar þar sem hitastigið á nóttinni er ákjósanlegt til að liggja undir þunnri sæng. Það er að sjálfsögðu hæðin yfir sjávarmáli sem veldur þessum notalegheitum á þessu slóðum, nærri 1.200 metrar.
Ef þessi guðlega fjarstýring gæfi fleiri möguleika myndi maður draga nokkra skýjabólstra upp á himinn til að draga úr sólinni, sem reyndar er óþarfi hér því þannig er þetta einmitt alla daga. Síðan drissar niður regni reglulega en stutt í senn, til að halda öllu iðagrænu.
Eitt er það sem ég myndi breyta ef ég gæti stillt klukkuna. Ég myndi seinka henni aðeins hér í Úganda. Það birtir of seint á morgnana. Ég fer út að skokka rétt fyrir sex á morgnana en dagrenning er rétt fyrir komu mína heim í hús aftur. Ég þarf því að hlaupa megin tíma leiðarinnar i myrkri.
Það nálgast reyndar skammdegi hér, sem við miðbaug er tvisvar á ári. Í mars og september er sólin hæst á lofti, en lægst um jónsmessu og jól. Þetta er svolítið öðruvísi en við eigum að venjast heima á Íslandi, þar sem við náum sólarljósi norður yfir heimskautið.
Golfvöllurinn er í nágrenni við vinnustaðinn og ekkert sem kemur í veg fyrir hálfan hring eftir vinnu þegar sá gállinn er á manni. Enda bjart til að verða sjö á kvöldin. Ég er að ganga frá inngöngu í golfklúbbinn og þá mun ég geta látið eins og ég sé heima hjá mér á vellinum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
- astromix
- ekg
- stefanbjarnason
- golli
- vikari
- gunnarpetur
- vestfirdir
- gudni-is
- ea
- ladyelin
- gp
- altice
- hjolaferd
- kaffi
- komediuleikhusid
- rabelai
- ziggi
- huldumenn
- helgi-sigmunds
- sigrunzanz
- hordurhalldorsson
- baldher
- hjaltisig
- lotta
- kjarri
- bjarnimax
- jovinsson
- smjattpatti
- eirmor
- vefritid
- saemi7
- siggisig
- maggij
- lehamzdr
- contact
- gauisig
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Gunnar. Alltaf ánægður! Hér eru upplýsingar frá timeanddate.com sem ég nota mikið. Hádegið (í norðri) er nú bara 12:48 og er þá ekki betra að hafa þarna smá- birtu í golfið eftir vinnuna? Annars vantar okkur þig hingað til þess að dríffa okkur á jöklana eins og venjulega.
Bestu kveðjur, Ívar.
Sun in north at 12:48 PM at altitude 68° above horizon
Ívar Pálsson, 2.6.2008 kl. 16:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.