22.11.2007 | 15:27
Sonar sonur fæddur
Hér verð ég að gera hlé á sögunum til að koma að mikilli frétt. Í dag varð ég afi í annað sinn þegar sonur minn Gunnar Atli varð faðir og eignaðist 14,5 merkur son með unnustu sinni Maríu Rut Kristinsdóttir. Ef ég man rétt þá er yngsti bróðir hins afans jafnaldri dóttur minnar og mæður þeirra lágu saman á fæðingadeildinni. Seinna varð langamman barnfóstra Hafdísar um töluvert langan tíma á Urðarveginum.
Það er á svona stundum sem maður sest niður og hugsar heimspekilega um lífið og tilveruna. Eitt sinn var ég að aka með vini mínum Óshlíðina, við vorum að koma úr gufu frá Bolungarvík og vorum tveir í bílnum. Illa mætt í það sinn en gaf okkur rými til að ræða á nótum sem illa passa við stærri hóp. Við komumst að því að það sem mestu máli skiptir í lífinu væri að koma erfðarefni sínu áfram. Eins og allar aðrar lífverur er það megin tilgangur okkar mannanna að fjölga okkur.
Fyrir á ég einn dóttur son, stór myndarlegan strák, Jón Gunnar, sem er að einum fjórða Sri Lankan. Ég fékk að hafa hann í tæpa viku í sumar þegar við Stína pössuðum hann í Tunguskógi. Það var ótrúlega skemmtilegur tími sem seint gleymist. Eitt sinn þegar við tókum hann í langa gönguferð sitjandi í bakpoka á baki afa síns. Hann var tæplega eins árs og við spjölluðum um heima og geyma eins og gengur en allt í einu þagnaði hann. Hann var steinsofnaður og það við Grænagarð. Það var ekki annað að gera en taka hann í fangið og bera hann alla leið inn í sumarbústað.
Sennilega hefði ég aldrei tekið þessu starfi ef ég hefði vitað að annað barna barn væri á leiðinn þegar ég tók því. Nógu erfitt samt að missa af öllum þeim framförum sem einn strákur getur náð og hvernig lífið lærist og einstaklingurinn þroskast.
Ef ég ætti einhvern möguleika á þá myndi ég vera floginn heim til Íslands og sjá nýjustu Doddabókina sem blandast Sólbakka á Flateyri. En ég á ekki tök á því og verður að bíða betri tíma.
En það er ekki nóg að fjölga sér. Maðurinn er flóknari en svo og er fjölskylduvera. Það þarf að halda fjölskyldunni vel saman enda mikilvægasta stofnun mannlegs samfélags.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.11.2007 kl. 08:37 | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
- astromix
- ekg
- stefanbjarnason
- golli
- vikari
- gunnarpetur
- vestfirdir
- gudni-is
- ea
- ladyelin
- gp
- altice
- hjolaferd
- kaffi
- komediuleikhusid
- rabelai
- ziggi
- huldumenn
- helgi-sigmunds
- sigrunzanz
- hordurhalldorsson
- baldher
- hjaltisig
- lotta
- kjarri
- bjarnimax
- jovinsson
- smjattpatti
- eirmor
- vefritid
- saemi7
- siggisig
- maggij
- lehamzdr
- contact
- gauisig
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Gunnar.
Til hamingju með nýja afastrákinn.
Pabbi hans var alveg með það á hreinu á mánudaginn þegar við vorum á fundi saman að hann yrði pabbi á fimmtudag. Vel skipulagður.
Kveðja að vestan.
Ingólfur H Þorleifsson, 23.11.2007 kl. 08:32
Sæll Gunnar.
Óska þér til hamingju með afabarnið.
Bestu kveðjur til ykkar allra. Bjarta framtíð.
Kveðja Auður Matt.
Auður Kristín Matthíasdóttir, 23.11.2007 kl. 10:21
Til hamingju öllsömul með strákinn, foreldrar og áar. Sannarlega er þetta aðalblessunin, lífið sjálft. Ef fæðingar halda áfram á þessum aldri í þessum legg, þá nærð þú kannski að verða langalangafi!
Ívar Pálsson, 23.11.2007 kl. 18:18
Ég þakka hlýleg orð. Sunna þú ert með töluna á hreinu. Svo þetta var 40. hefti Doddabókanna.
Gunnar Þórðarson, 24.11.2007 kl. 01:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.