31.8.2007 | 14:23
Fjallgarðar og heimspeki
Það er nóg að gera á Sri Lanka. Maður mætir á morgnana í vinnuna og hefur á tilfinningunni að himinin háir hamrar og fjallgarðar séu framundan. Maður reynir að klöngrast yfir ófæruna en einhvernvegin finnst manni að kvöldi að það hafi tekist. Þó manni sé haldið á tánum er svona slakað á manni áður dagur er allur og að kveldi komin. Mér líkar þetta mjög vel. Reyndar flýði ég átakaleysið í vinnunni heima og vildi hafa svolítið fyrir hlutunum. Þannig er það hér og engin hætta á að maður svitni ekki í starfi fyrir forseta vorn og fósturjörðina.
Í morgun átti ég minn fyrsta fund í Sjávarútvegsráðuneyti Sri Lanka. Þar eru Íslendingar greinilega vel liðnir og andrúmið í okkar garð afslappað þó það sé faglegt. Eftir fundinn rölti ég með foringjanum um ýmsar hæðir byggingarinnar þar sem við hittum sem tengjast verkefnum sem við vinnum að eða eru í farvatninu.
Fundurinn sjálfur var um verkefni sem þegar er hafið og byrjaði með talningu á fiskibátum í Sri Lanka. Þeir reyndust vera rúmlega 30 þúsund en höfðu ekki verið taldir í áratugi. Það er hinsvegar ekki nóg að telja ef því er ekki viðhaldið og því erum við að hjálpa til við að setja upp gagnagrunn sem verður viðhaldið, svona skipaskrá. Síðan verður í framhaldi af því farið út í skráningu á lönduðum afla, en slíkt er nauðsynlegt ef menn vilja hafa stjórn á fiskveiðum.
Íslendingar líta á slíkt sem sjálfsagðan hlut og jafnvel dæmi um ofstjórn. En án skipaskár og aflaskráningar er ekki hægt að hafa stjórn á hlutunum. Hvað þetta varðar höfum við mikið fram að færa og eru Íslenskir sérfræðingar ráðgjafar Sjávarútvegsráðuneytisins í þessum verkefnum í grundvallar atriðum fiskveiðistjórnunar Sri Lanka.
Það var gaman að skrölta um ráðuneytið og hitta hina fólk og ræða þau verkefni sem við errum að fást við. Það var engin vafi á því að viðmælendum líkaði samstarfið við Íslendinga og bundu miklar vonir við að það skilaði sjávarútveg þeirra fram á veginn.
Það var gott að ljúka annasömum degi með skokki í Viktoríugarðinum. Skógi vöxnum þar sem pálmatrén svigna undan kókoshnetunum. Maður hugsar mikið á svona skokki og um hugann flögrðu hugsanir um lífið og tilveruna. Það gerði hitabeltisskúr og var eins og helt úr fötu, sem var ótrúlega notalegt í 29 stiga hita.
Að stökkva úr öruggu starfi þar sem lítið þurfti að leggja á sig, sem sagt notalegu, til að takast á við erfiðar áskoranir og vera á tánum alla daga. Það er ekki skrýtið að sumum hafi fundist þetta vera rótleysi, en svo er alls ekki. Sumir þurfa bara á áskorun að halda og þola ekki hversdagsleikann. Það gerir mig ekkert betri mann, en heldur ekki verri. Ég er bara nákvæmlega þar sem ég vil vera, fyrir utan fjarveru frá fjölskyldunni.
Það er risa stytta af Budda við aðalinngang Viktoríugarðsins. Þegar ég hljóp rennandi blautur, fram hjá líkneskinu í ljósaskiptunum, flögruðu um mig heimspekilegar hugsanir. Heimspeki Budda snúast um hvernig hægt er að verða betri maður og rækta með sér þekkingu, nærgætni og góðmennsku. Ekki það að ég hafi gert það í gegnum tíðina en það er aldrei of seint að reyna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:13 | Facebook
Um bloggið
Gunnar Þórðarson
Tenglar
Hallgrímur bláskór 2012
- Gengiðr úr Hornvík í Kjaransvík
- Kjaransvík - Sæból
- GEngið á Ryt og Darra
- Gengið á Straumnesfjall
- Gengið á brúnir Grænuhlíðar
Smölun í Austurdal
- Austurdalur -2010 Dagur 1 Smölun í hinum ægifargra Austurdal suður af Skagafirði
- Austurdalur - 2010 Dagur 2 Annar dagur smalamensku í Austurdal í Skagafirði
- Austurdalur -2010 Dagur 3 Lokadagur smölunar fyrir Austudalsfélagið í Skagafirði
- Föstudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Laugardagur í Austurdal 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Sunnurdagur í Austurdal - 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
- Mánudagur 2011 Smalaferð Göngumannafélags Austurdals í september 2011
Skútukaupin 1976
Við félagarir, undirritarðu, Jón Grímsson og Hjalti Þrórðarson keyptum skútu í Bretlandi og sigldum henni heim til Íslands
- Kafli 1 - Skútukaupin undirbúin
- Kafli 2 - England
- Kafli 3 - lagt í siglinguna miklu
- Kafli 4 - Captain Thordarson
- Kafli 5 - Siglt í norður
- Kafli 6 - Færeyjar - Ísland
- Kafli 7 - Siglt til Ísafjarðar
Ísrael 1974
Sagt frá ævintýri okkar Stínu, Nonna Gríms og Hjalta Bróður þegar við ókum yfir Evrópu 1974. Fórum frá Aþenu til ísrael og unnum þar á samyrkjubúi.
- Kafli 1 - Mótorhjólagengið
- Kafli 2 - Júgóslavía, Grikkland og Ísrael
- Kafli 3 - Á kibbutz undir Gólanhæðum
- Kafli 4 - Í kjölfar árásarinnar
- Kafli 6 - Maðurinn með ljáinn
- Kafli 5 - Endurfundir
- Kafli 7 - Frá rauðu ljósi í Milanó
- Kafli 8 - Fjölskyldu og varnarmál
- Kafli 9 - Vinna í Elat
- Kafli 10 - Daglegt líf á Shamir
- Kafli 11 - Til Grikklands
- Kafli 12 - Sögulok í London
Að Fjallabaki 2012
Suður um höfin 1979
Frá ferðalagi okkar Stínu á seglskútunni Bonny frá Ísafirði til Mallorca í Miðjarðarhafi
Sigling frá Mallorka til Grikklands
- Kafli 1 - lagt af stað til Ítalíu Fimm félagar sigldu Bonny frá Spánar til Grikklands
- Kafli 2 - Sikiley og Grikkland
- Kafli 3 - Kea og Paros
- Kafli 4 - Santorini
Safaríferð í Úganda
- Ferð til Murchison Falls - fyrri hluti Safaríferð inn í frumskóg Úganda
- Ferð til Murchison Falls - seinni hluti
Hálendisferð 2010
- Gengið á Fimmvörðuháls Eldstöðvar Fimmvörðuháls skoðaðar
- Skaftafell og Kristínartindar Gengið á Kristínartinda
- Gengið á Mælifell Ekið Fjallabak syðra norður fyrir Mýrdalsjökul
- Friðland að Fjallabaki Gengið um við Landmannalaugar
- Gengið á Löðmund Gengið á Löðmund við Dómadal
- Gengið á Snæfell Gengið á hæsta fjall Íslands utan jökla, Snæfell
- Gengið í Geldingarfell Ferð um Lónsörævi með frábærum hópi, sumarið 2010
- Gengið í Egilssel Gengið úr Geldingafelli í Egilssel við Lónsöræfi
- Gengið niður Lónsöræfi Þriggja daga göngu norðan og austan Vatnajökuls lokið
Sri Lanka 2007
- Sri Lanka 2006-2008 Starfað á Sri Lanka
Bloggvinir
-
astromix
-
ekg
-
stefanbjarnason
-
golli
-
vikari
-
gunnarpetur
-
vestfirdir
-
gudni-is
-
ea
-
ladyelin
-
gp
-
altice
-
hjolaferd
-
kaffi
-
komediuleikhusid
-
rabelai
-
ziggi
-
huldumenn
-
helgi-sigmunds
-
sigrunzanz
-
hordurhalldorsson
-
baldher
-
hjaltisig
-
lotta
-
kjarri
-
bjarnimax
-
jovinsson
-
smjattpatti
-
eirmor
-
vefritid
-
saemi7
-
siggisig
-
maggij
-
lehamzdr
-
contact
-
gauisig
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gunnar Gúrú!
Ívar Pálsson, 31.8.2007 kl. 23:46
Ívar kolefnismógúll vaxtaþarkjur
Gunnar Þórðarson, 1.9.2007 kl. 05:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.