Ótrúlegt lýðskrum

Það er ótrúlegt lýðskrum hjá stjórnarliðum að saka Sjálfstæðismenn um ofbeldi og skemmdarverk í stjórnarskrármálinu.  Ekkert kallar á breytingar á stjórnarskrá þessa dagana og nær að einbeita sér að peninga- og efnahagsmálum.  Stjórnarskráin er sáttmáli þjóðarinnar og algjört stílbrot að reyna að keyra í gegn breytingar gegn vilja stjórnarandstöðu.  Sérstaklega hjá minnihlutastjórn sem kallar sig starfsstjórn um viðreisn efnahags landsins.

Ég skora á fólk að kynna sér ummæli stjórnarliða um tillögur að stjórnarskrárbreytingum fyrir síðustu kosningar.  Þá var hætt við þar sem samstaða náðist ekki og mönnum datt ekki til hugar að þvinga breytingar í gegn.


mbl.is Ofbeldi og skemmdarverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Henry Petersen

Já, er virkilega EKKERT sem bendir til þess að þurfi að auka lýðræði á þessu landi og gefa þjóðinni tækifæri á að ákvarða sín eigin örlög? Er virkilega EKKERT sem bendir til þess að það sé mikilvægt að setja á stjórnarskrá að auðlindir þjóðarinnar tilheyra henni? Er virkilega EKKERT sem bendir til þess að það þurfi að aðgreina löggjafarvald og framkvæmdavald? Það var þá.

Pétur Henry Petersen, 17.4.2009 kl. 14:57

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Tek undir með þér Pétur! Það er ekki nóg að bjarga skuldum. Það verður að nota tækifærið og koma hér á breytingum þannig að fólk vilji búa hér áfram. Og ef menn eins og sjálfstæðismenn fá að ráða þá verður fullkomin slit milli Alþingis og þjóðar. Eftir það starfar Alþingi í raun ekki lengur í umboði þjóðarinnar.

Alþingi hefur nú haft yfir 60 ár til að setja okkur Stjórnarskrá því þessi sem við notum er fengin að mestu frá Dönum og átti bara að nota í nokkur ár.

En sumir halda að það sé nóg að skaffa fólki bara peninga aftur og svo byrjum við aftur að vinna markvisst að koma okkur í sömu vandræði aftur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.4.2009 kl. 17:36

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Alveg rétt Gunnar, það á ekki að vera hægt sisvona að hlaupa til og breyta Stjórnarskránni ef mönnum dettur það allt í einu í hug.  Stjórnarskráin er grunnplagg lýðveldisins og er grunnur allrar lagasetningar í landinu.  En æðibunugangurinn var slíkur að það var ríkisstjórninni til háborinnar skammar.

Það dylst engum að það þarf að fara í þá vinnu að breyta Stjórnarskránni, en það verður að vera gert í sátt við alla, þannig hefur það verið gert hingað til.  En slík vinnubrögð er nokkuð sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa ekki tamið sér og er þá ekki von á góðu.

Þegar farið verður í Stjórnarskrárbreytingar þá þarf það að gerast í því andrúmi að almennur friður og sátt ríki í þjóðfélaginu, en því er ekki að heilsa núna, því miður.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.4.2009 kl. 02:24

4 Smámynd: Gunnar Þórðarson

Nákvæmlega rétt hjá þér Tómas.  Stórnarskráin er sáttmáli þjóðarinnar og það er ekkert að því að eindurskoða og breyta henni.  Það hefur verið gert nokkrum sinnum undanfarin misseri.  Það verður hinsvegar að vera sátt um breytingarnar á þingi.  Þetta er eins og áður segir sáttmáli þjóðarinnar en ekki þingsins eða meirihluta þess.  Um það hefur gilt sátt þar til þessi vitleysa öll byrjaði.

Ég hef búið í mörgum ríkjum og veit hvað lýðræði og almenn mannréttindi skipta miklu máli.  Það svellur í mér blóðið af reiði þegar Íslendingar tala niðrandi um þjóðskipulag sitt og kalla Ísland ,,bananalýðveldi"  Pétur og Magnús eru blindaðir af ,,trú" sinni í pólitík og sjá því ekki skóginn fyrir trjám. 

Gunnar Þórðarson, 19.4.2009 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 283910

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband