Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2012

Grein í Fiskifréttum

 

Að draga kanínu úr hatti

Stjórnarsinnar ræða um fyrirhugaðar breytingar á stjórn fiskveiða eins og það muni auka tekjur og styrkja sjávarbyggðir.  Allir gera sér grein fyrir að auðlindin er takmörkuð og breytingar á fiskveiðilöggjöf auka ekki veiðar.  Auki breytingar nýliðun í útgerð hlýtur það að ýta núverandi aðilum til hliðar og spurningin er þá hverjir það verða og hvaðan gera þeir út í dag.  Ef bæta á hag einhverra byggðalaga með handafli verður það á kostnað annarra!

Er líklegt að sjávarbyggðir eins og Vestfirðir muni eflast við fyrirhugaðar breytingar?  Ekki mun tilfærsla upp á 1.2 milljarða úr fjórðungnum til Reykjavíkur styrkja Vestfiska byggð!  Verða Vestfirðingar betur settir með því að bíða á bekkjum sjávarútvegsráðuneytisins til að biðja um aflaheimildir eða er heilbrigt atvinnulíf  líklegra til að standa undir lífsgæðum íbúanna? 

Töfrabrögð

Auðvitað eru engir töfrar til í þessu og engin kanína verður dregin úr hatti í íslenskum sjávarútvegi.  Hvergi í veröldinni er sjávarútvegur sem skilar sambærilegri auðlindarentu og hér á landi.  Í Noregi er auðlindarentan engin þar sem hver króna fer í kostnað, og þá er búið að taka tillit til ríkisstyrkja.  Þessi mikli fiskveiðiarður byggir á því að Íslendingar hafa notað markaðsbúskap sem stjórntæki í sínum sjávarútveg, enda um undirstöðuatvinnugrein að ræða sem stendur undir lífskjörum þjóðarinnar og ekki í myndinni að reka hann á öðrum forsendum.  Þær breytingar sem stjórnarflokkarnir stefna að er að snúa af þeirri vegferð í handstýrt hagkerfi.  Færa ákvarðanatökuna í ráðuneyti í Reykjavík um það hver á að veiða hvað, hvar og hvernig.  Hvergi annars staðar á vesturlöndum gæti það gerst að mikilvægasta atvinnugreinin væri þjóðnýtt og tekin upp úrelt hugmyndafræði pólitísks skipulags.

Endurskipulagning vestfisks sjávarútvegs

Vestfiskur sjávarútvegur skuldar um 40 milljarða króna og rekstarafgangur (EBITA) er um 4 milljarðar króna.  Það er sú upphæð sem menn hafa til að borga vexti, skatta og til fjárfestinga.  Öll venjuleg viðmið eru að fyrirtæki geti skuldað um 4-5 sinnum rekstarafgang sinn, og eðlilegar skuldir vestfirsks sjávarútvegs væri því í kringum 16 - 20 milljarðar króna.  Viðbótar skattheimta upp á 1.2 milljarða mun ekki hjálpa til, en óbreytt ástand gengur heldur ekki upp.  Um 10 þúsund tonnum af hráefni er ekið burt af norðanverðum Vestfjörðum þar sem fiskvinnsla á svæðinu er ekki samkeppnisfær um að kaupa þennan afla.  Hluti af vandamálinu er að vegna hárra skulda eru þessi fyrirtæki nokkurskonar vaxtaþrælar og arðurinn fer allur í lánadrottna.  Þau eru ekki samkeppnishæf um þetta hráefni og hafa ekki burði til að fjárfesta í nýrri tækni og mannauði.  Og hvað er þá til ráða?

Að snúa vörn í sókn

Fyrsta skilyrðið er að eyða óvissu í fiskveiðistjórnarmálum og tryggja arðsemi greinarinnar til frambúðar.  Gera vestfirskan sjávarútveg aðlaðandi fyrir fjárfesta en mikið framboð er af krónum þessa dagana enda lítið um fjárfestingatækifæri á Íslandi. Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja með fjármögnun í gegnum Kauphöll gæti verið fyrsta skrefið til að snúa vörn í sókn.  Með aðild að Kauphöll verður gegnsæi rekstrar meira og aðkoma almennings sem hluthafa möguleg.  Með öflugum fyrirtækjum sem greitt gætu hærri laun myndu sjávarbyggðir njóta fiskveiðiarðsins þar sem nærsamfélagið myndi blómstra með auknum tekjum íbúa. 

Framtíð Vestfjarða

Þjóðnýting og útelt hugmyndafræði um að skipulag og stjórnun sé best komið fyrir í ráðuneyti í Reykjavík þar sem gæðum verður úthlutað á pólitískum nótum, er ekki líkleg til að styrkja byggð á Vestfjörðum.  Vestfirðir munu standa og falla með öflugum og vel reknum sjávarútveg sem rekinn er á markaðslegum forsendum.  Við sem kjósum að búa á Vestfjörðum eigum nú allt okkar undir að alþingismenn taki skynsamlegar ákvarðanir í þessum málum og láti ekki skammtíma hagsmuni í póltík ráða för um grundvallar tilveru sjávarbyggða og afkomu þjóðarinnar.


Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 283749

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband