Bloggfćrslur mánađarins, maí 2008

Viđ miđbaug

 

Ţađ er ótrúlega notalegt í Úganda.  Ef ćđri máttarvöld hefđu fengiđ manni  hitastillir myndi mađur stilla á hitastigiđ hér í Kampala.  Ţađ er nákvćmlega eins og mađur vill hafa ţađ.  Ólíkt Sri Lanka getur mađur opnađ gluggann á skrifstofunni og látiđ notalegan blćinn leika um sig.  Lofkćlingar eru óţarfar ţar sem hitastigiđ á nóttinni er ákjósanlegt til ađ liggja undir ţunnri sćng.  Ţađ er ađ sjálfsögđu hćđin yfir sjávarmáli sem veldur ţessum notalegheitum á ţessu slóđum, nćrri  1.200 metrar.

Ef ţessi guđlega fjarstýring gćfi fleiri möguleika myndi mađur draga nokkra skýjabólstra upp á himinn til ađ draga úr sólinni, sem reyndar er óţarfi hér ţví ţannig er ţetta einmitt alla daga.  Síđan drissar niđur regni reglulega en stutt í senn, til ađ halda öllu iđagrćnu.

Eitt er ţađ sem ég myndi breyta ef ég gćti stillt klukkuna.  Ég myndi seinka henni ađeins hér í Úganda.  Ţađ birtir of seint á morgnana.  Ég fer út ađ skokka rétt fyrir sex á morgnana en dagrenning er rétt fyrir komu mína heim í hús aftur.  Ég ţarf ţví ađ hlaupa megin tíma leiđarinnar i myrkri.

Ţađ nálgast reyndar skammdegi hér, sem viđ miđbaug er tvisvar á ári.  Í mars og september er sólin hćst á lofti, en lćgst um jónsmessu og jól.  Ţetta er svolítiđ öđruvísi en viđ eigum ađ venjast heima á Íslandi, ţar sem viđ náum sólarljósi norđur yfir heimskautiđ.

Golfvöllurinn er í nágrenni viđ vinnustađinn og ekkert sem kemur í veg fyrir hálfan hring eftir vinnu ţegar sá gállinn er á manni.  Enda bjart til ađ verđa sjö á kvöldin.  Ég er ađ ganga frá inngöngu í golfklúbbinn og ţá mun ég geta látiđ eins og ég sé heima hjá mér á vellinum.


When I am fifty four

 

Viđ húsiđ í KampalaÉg er búinn ađ vera á ferđ og flugi undanfariđ.  Kominn aftur til Kampala frá Colombo og bíđ eftir dótinu mínu sem fylgir mér um hćl.  Ég rek nú ţrjú heimili, eitt í Colombo, annađ í Kampala og ţađ ţriđja á Íslandi.  Ég er međ tvćr vinnukonur á launaskrá í tveimur heimsálfum og verđur svo ţar til ég fer heim í sumarfrí.  Ţá hćttir Pam sem hugsađ hefur um mig á Sri Lanka en hún mun eiga rólega daga fram í lok júní, ţangađ til ég sný aftur til Colombo til ađ leysa af ţar út júlí.

Um nćstu helgi verđ ég fjarri góđu gamni ţar sem haldiđ verđur upp á fjörutíu ára fermingarafmćli 54 mótelsins.  Reyndar missa jafnaldrar mínir af miklu ţar sem hin heimsfrćga hljómsveit Tigers, mun ekki geta haldiđ upp fjöri ţessa helgi á Ísafirđi vegna minnar fjarrveru.  Hinir tveir međlimirnir, Dóri Ebba og Pimmi, munu hinsvegar aka saman til ţessa fagnađar á föstudags morguninn.

Ég sé ađ gömul vinkona mín, frá sjötta áratugnum, Friđlín ćtlar ađ mćta í fyrsta skiptiđ til leiks, en 54 árgangurinn hittist allt ađ tvisvar á ári í gegnum tíđina.  Viđ Friđlín gengum iđulega saman í skólann, enda bjuggum viđ bćđi viđ Stakkanes sem er um hálfan annan kílómeters leiđ.  Hún bjó á Litlabýli en ég á Vinaminni. 

Reyndar hitti ég Friđlínu fyrir nokkrum árum sem voru fagnađarfundir.  Viđ fórum međal annars í heimsókn upp í Hlíđ II, ţar sem Kitti Gauj og Jóhanna Jakobs bjuggu.  Ţar var okkur tekiđ međ kostum og kynjum međ kaffi og kökum.  Hlíđ II var leikvangur okkar í gamla daga en Kitti rak ţar fjárbúskap međ meiru.  Viđ unnum öll sumur í heyskap og minnst ég ţess ađ eitt sinn fengum viđ greitt í bita af suđusúkkulađi eftir úthaldiđ, og í annađ skiptiđ međ blóđappelsínu.  Ţetta ţótti okkur góđ kjör og undum viđ félagarnir sćlir viđ launin.

Ađeins nokkrum árum eftir heimsókn okkar Friđlínar var bćrinn horfin og íbúarnir báđir farnir á vit forfeđrana.  Ţađ er ekkert ţarna núna sem minnir á leikvang ćskuáranna.  Tjörnin sem okkur ţótti risastór er horfin ásamt uppsprettunni og laxakofanum.  Ekkert sem minnir á fjárhúsin, hćnsnakofann, hlöđuna né dúfnakofann hans Kobba, sem var leikfélagi okkar og ćskufélagi.

Ađ hitta gamla skólafélaga er alltaf jafn skemmtilegt.  Eins og einn vinur minn orđađi ţađ ţá hittir mađur ţau viđ ákveđa stemmingu.  Eins og mađur líti á jákvćđar hliđar lífsins og upplifi nánast ţessi skemmtilegu ár barns og unglings.  Mađur veltir fyrri sér hvernig einum og öđrum hefur gengiđ í lífinu en flestir hafa bćđi reynt súrt og sćtt ţessi fjörutíu ár síđan viđ stađfestum skírnina.

Mér hugnađist hugmynd Mćju Kristjáns um ađ hvetja til ţess ađ jafnaldrarnir rifjuđu upp skemmtilegar sögur af óţekkt og uppákomum í skólanum.  Ekki ađ ég gćti gert ţađ sjálfur, enda alger engill sem hvorki datt né draup af ţessi árin.  En svona gamanlaust ţar sem hún minntist á Halldóru Magnúsdóttir kennara ţá sat ég fyrir nokkrum árum í kaffi hjá vini mínum Ţresti Massa í Pétursborg.  Halldóra, eiginkona hans, kom ţá og settist hjá okkur til ađ spjalla.  Ég gat ekki stillt mig um ađ biđja hana afsökunar á ţví hversu illa ég hafđi komiđ fram viđ hana í gaggó.  Hún var einhvernvegin svo auđveld bráđ fyrir miskunnlausan unglinginn.  Hún horfđi á mig stórum augum og sagđi:  "Gunnar minn ţú varst nú alltaf svo stilltur,,  Ég hef aldrei fengiđ betri sakaruppgjöf á ćvinni.

En sökin bítur engu ađ síđur og ég minnist ţess međ trega og skömm hvernig viđ komum fram viđ tvćr skólasystur okkar.  Ađra ţeirra bađ ég fyrirgefningar fyrir allmörgum árum síđan, sem hún tók vel.  Vildi ţó ekki mćta til árgangsveislu sem ţá var haldin og sagđist ekkert vilja međ okkar hóp ađ gera.  Ţar er kannski verk ađ vinna fyrir 54 móteliđ í framtíđinni.

En ţćr stöllur Bjarndís og Rósa hafa veriđ eins og guđmćđur okkar í gegnum tíđina og haldiđ ţessum hópi saman.  Hópurinn hefur međal annars framleitt kvikmynd og ég minnist ţess ađ hafa skrifađ upp logna lýsingu á ferđalagi hópsins međ rútu til Bolungarvíkur.  Viđ veittum gullpálmann fyrir bestu kvikmynd og leikstjórn á miklu hátíđarkvöldi í Krúsinni.  Ef ég man rétt var 57 móteliđ ađ skemmta sér međ okkur og komust aldrei ađ fyrir hressu liđi 54 árgangsins.

Ég er sannfćrđur um ađ 54 skemmtir sér vel um sjómannadagshelgin á Ísafirđi.  Bestu kveđjur frá Afríku.

 


Um bloggiđ

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 283869

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband