Bláfell

 

Við GullfossLengi höfðum við Ívar vinur minn velt fyrir okkur göngu á Bláfell sem blasir við ferðamanni mikilúðugt og tignalegt, frá Kjalvegi.  Bláfell er tiltölulega auðvelt uppgöngu og skilar rækilegu útsýni miðað við fyrirhöfn.  Hægt er að aka jeppa áleiðis upp slóða sem liggur upp Illagil, en þar er uppganga auðveldust.

Það leit ekkert sérstaklega vel út með veður þennan ágústmorgun þegar við lögðum af stað ásamt eiginkonum frá bústað við Apavatn.  Lágský og mistur og ekki bjart yfir til fjalla.  En við létum slag standa og héldum af stað norður Kjalveg.  Við stoppuðum við Gullfoss og þaðan sást vel til Bláfells, þó að mestu hulið skýjum.  Við veltum fyrir okkur að að söðla um og stefna á Jarlhettur, en þar var bjart yfir og mikil fjallasýn.  Við ákváðum hinsvegar að halda okkur við Bláfell með von um að fjallið myndi sópa af og verðlauna göngumóða ferðamenn þegar á toppinn kæmi.

Þrætt fyrir skaflinn upp á brúnÞað var hlýtt í veðri en ennþá skýjahula í austri og ekki sást á tind Bláfells í upphafi göngu.  Mikill skafl liggur undir klettabrún Illagils og stefndum við á stað sem virtist vera snjólaus og auðveldur uppgöngu upp á brúnina.  Þrátt fyrir lausar skriður og bratta gekk uppgangan vel Byrjar að birta tilog við tók aflíðandi halli í stórgrýti, en þó föstu undir fæti, áleiðis upp á toppinn.   Það lyftist brúnin á göngumönnum því nú birti til og himinn sópaði af sér skýjahulunni og sólin vermdi líkama og sál.  Það styttist í toppinn og ljóst að Bláfell myndi ekki svíkja okkur með útsýni og göngumenn Gleðirík gangafengju afrakastur erfiði síns.  Upp í hugann kom tröllið Bergþór sem átti bólstað í Bláfelli:

Í Bláfelli bjó Bergþór tröll. Hann var forspár og margvís en átti gott samband við menn er ekki gerðu á hlut hans. Eitt sinn er Bergþór var á leið úr byggð í helli sinn sótti að honum þorsti. Hann áði við Bergstaði og beiddist þess af húsfreyju að hún gæfi sér vatn. Á meðan húsfreyja sótti vatnið klappaði Bergþór ker mikið í klöpp sem bærinn er kenndur við og lagði á að í því myndi aldrei frjósa eða þrotna sýran ... og hefur það ekki gerst enn svo vitað sé.(Heimild: Árbók Ferðafélags Íslands 1998, Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar)

Útsýni er mikið af þessu 1200 metra háa fjalli sem stendur skammt austan Langjökuls.  Hlöðufell í austri og handan þess er Skjaldbreiður.  Þórisjökull skammt undan Geitlandsjökli og nær grillti í Toppur BláfellsHagavatn undir Hagafelli.  Þar taka við Jarlhettur sem virðast vera óárennilegar og raða sér upp eins og varðhundar suð- austan Langjökuls.  Eiríksjökull teygir sig yfir megin jökulinn og nánast rennur saman við hann.  Hvítárvatn, Nestið borðaðupptök Hvítár, með norður- og suðurjökull sem keipa í því birtist í norðri.  Lengra er Hrútfell með hvítan koll en austar breiðir Hofsjökull úr sér.  Kerlingafjöll skera sig alls staðar úr en héðan frá eru þau einhvernvegin ólík sjálfum sér.  Í suðri má sjá Hvítá og Grjótá þar sem þær sameinast áður en þær hlykkjast suður Hrunamannaafrétt.  Greinilega má sjá úðann frá Gullfossi sem glampar á í sólskininu.Hvítárvatn

Það er gaman að taka upp malinn og njóta úrsýnisins í góðra vina hópi á slíkum stað.  Sólin vermdi og hægur norðan andvari lék um göngumóða ferðalanga sem hvíldu lúin bein yfir góðu nesti.

Ferðin niður gekk vel en þegar hópurinn var hálfnaður gerði skúrir og áður en varði var komin helli rigning og síðar haglél.  Ekki sást í toppinn á Bláfelli og engu líkara en tröllinu Bergþóri þætti við búin að njóta bústaðar hans nóg og hér skyldi tjaldið dregið fyrir.  Það kom ekki að sök, enda göngumenn vel útbúnir og laun erfiðisins þegar greidd að Að lokinni fjallgöngufullu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þórðarson

Höfundur

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson

Viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum.  Fordómalaus frelsisunnandi og heimshornaflakkari. Hefur búið í Rússlandi, Kanada, Mexíkó, Sri Lanka og Uganda en aldrei fór ég suður. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísl fáninn
  • IMG_6866
  • IMG_6817
  • Gefa mótor
  • gefa money

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 283863

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband